Hamar bikarmeistari í fimmta skipti eftir æsispennandi sigur á Aftureldingu

Hamar tryggði sér í dag sinn 5 bikarmeistaratitil eftir æsispennandi 3-1 sigur á Aftureldingu.

Búist var við hörkuleik enda bæði lið verið á gífurlega mikilli siglingu í deildinni.

Fyrir leik var mínútu þögn til minningar um Kára Þór Kárason, Kári sem hafði verið afar öflugur sjálfboðaliði fyrir Blaksambandið féll frá skyndilega í desember á síðasta ári.

Afturelding byrjaði leikinn af miklum krafti og var staðan 15-9 þegar Hamar tók sitt seinna leikhlé í fyrstu hrinu.  Hamar sótti þó í sig veðrið og minnkaði muninn niður í 1 stig 16-15. Eftir æsispennandi lokakafla var það Afturelding sem hafði betur 25-20. Spennan hélt áfram í annarri hrinu en liðin skiptu með sér stigum. Frábær tilþrif beggja liða bæði sóknar og varnarlega buðu uppá hnífjafnan leik. Hátt spennustig var í hrinunni sem lauk með sigri Hamars í upphækkun 28-26.

Ekki var spennustigið minna í þriðju hrinu en bæði lið héldu áfram að skipta með sér stigum. Hamarsmenn eyddu þó full miklu púðri í að mótmæla ákvörðunum dómara leiksins en það kom þó ekki að sök. Hamar endaði á að hafa betur 25-20. Afturelding fór betur af stað í fjórðu hrinu en hægt og rólega sóttu Hamarsmenn í sig veðrið og náðu að jafna 11-11.

Hamar virtist svo ætla að ná  tökum á hrinunni en Afturelding gerði allt sem þeir gátu til að koma í veg fyrir það. Eftir tvenn sóknar mistök í röð hjá Hamri voru Afturelding komnir í 24-23. Afturelding jafnar í 25-25 en fá svo rautt spjald fyrir að sparka boltanum útaf vellinum. Staðan því orðin 25-25. Tamas Magyar tryggði Hamri svo sigur með stigi beint úr uppgjöf 28-26.

Stigahæstur í leiknum var Hafsteinn Már Sigurðsson leikmaður Aftureldingar með 28 stig. Stigahæstur í liði Hamars var Andrejs Koselev með 17 stig,

Ragnar Ingi Axelsson var svo valinn maður leiksins.

Volleyball.is óskar Hamri til hamingju með bikarmeistaratitilinn.

 

Mynd: Mummi Lú