Grímur íþróttamaður Þróttar Reykjavíkur 2025

Enn halda blakarar áfram að fá viðurkenningar fyrir góð störf en í dag var Grímur Kristinsson útnefndur íþróttamaður Þróttar Reykjavíkur árið 2025.

Grímur er fæddur árið 2008 en hefur þrátt fyrir það leikið með meistaraflokki karla undanfarin tvö tímabil. Hann leikur sem alla jafna sem frelsingi með meistaraflokksliðinu en getur leyst flestar stöður á vellinum. Grímur hefur einnig leikið með 1. deildarliði Þróttar R þar sem hann hefur leikið stórt hlutverk.

Karlalið Þróttar fagnaði góðu gengi á síðasta tímabili þar sem að liðið fékk silfurverðlaun í öllum keppnum. Liðið situr í efsta sæti Unbroken deildarinnar í dag en hörð barátta er um efstu sætin.

Katla Hrafnsdóttir er blakkona ársins 2025 hjá Þrótti Reykjavík

Kvennamegin var Katla Hrafnsdóttir valin blakkona ársins hjá Þrótti Reykjavík. Katla leikur sem díó og er einn af stigahæstu leikmönnum liðsins. Kvennalið Þróttar lauk keppni í 6. sæti Unbroken deildarinnar á síðasta tímabili en hefur gert enn betur á yfirstandandi tímabili. Þær sitja nú í 5. sætinu í harðri baráttu um 4. sæti deildarinnar.