Eftir stutt hlé hélt keppni áfram á EM kvenna í gær. Riðlakeppninni lauk á föstudag og útsláttarkeppnin hófst á sunnudag með fyrstu leikjum 16-liða úrslitanna.
Aðeins tveir leikir fóru fram í gær en það var annars vegar viðureign Frakklands og Grikklands en hins vegar viðureign Serbíu og Króatíu. Fyrirfram mátti búast við nokkuð öruggum sigrum Frakklands og Serbíu en annað kom á daginn. Grikkland gerði sér lítið fyrir og vann öruggan 3-0 sigur á Frakklandi og kemst þar með í 8-liða úrslit Evrópumóts kvenna í fyrsta sinn. Besti árangur liðsins er 8. sæti en á því móti var annað fyrirkomulag notað.
Í seinni leik gærdagsins var byrjun leiks einnig afar óvænt. Króatía vann nokkuð sannfærandi sigur í fyrstu hrinu en eftir það snerist dæmið við. Serbía komst á gott skrið og vann næstu þrjár hrinur örugglega. Sigurinn var aldrei í hættu eftir að Serbía jafnaði leikinn 1-1 en liðið vann síðustu tvær hrinur leiksins auðveldlega. Serbía fer því áfram og mætir Grikklandi í 8-liða úrslitunum.
Í dag halda 16-liða úrslitin áfram með fjórum leikjum. Stórlið Ítalíu mætir til leiks gegn Búlgaríu og Pólland mætir Portúgal eftir glæsilegan sigur á Tyrklandi í lokaleik riðlakeppninnar. Þá mætast Tékkland og Svíþjóð í æsispennandi viðureign sem fer fram á heimavelli Tékklands í Brno. Að lokum eru það Holland og Slóvenía sem mætast í leik sem ætti fyrirfram að verða jafn og spennandi.
Úrslit gærdagsins – 30. ágúst
Frakkland 0-3 Grikkland (16-25, 18-25, 20-25). Martha Evdokia Anthouli skoraði 20 stig fyrir Grikkland.
Serbía 3-1 Króatía (19-25, 25-19, 25-17, 25-12). Aleksandra Uzelac og Tijana Boskovic skoruðu 18 stig hvor fyrir Serbíu.
Leikir dagsins – 31. ágúst
13:00 Holland – Slóvenía
14:00 Ítalía – Búlgaría
16:00 Pólland – Portúgal
17:00 Tékkland – Svíþjóð