Góð byrjun dugði skammt gegn Ítalíu

Íslensku U18 strákarnir mættu heimamönnum frá Ítalíu í leik dagsins á EM. Ítalska liðið er í harðri baráttu um sæti í undanúrslitum en efstu tvö lið hvors riðils fara þangað.

Eftir langan keppnisdag í höllinni var nokkur seinkun á leik dagsins sem byrjaði um klukkutíma á eftir áætlun. Það virtist ekki trufla strákana sem byrjuðu afar vel. Jafnt var 10-10 í fyrstu hrinunni þegar Ítalía átti frábæran kafla og skoraði 7 stig í röð. Eftir þetta náði íslenska liðið sér illa á strik og Ítalir náðu 0-1 forystu. Restin af leiknum reyndist íslenska liðinu afar erfið. Þeir áttu í vandræðum með sterka hávörn Ítalíu sem varð til þess að liðið festist oft lengi í ákveðnum stöðum. Ítalía sigldi öruggum 0-3 sigri heim.

Ísland 0-3 Ítalía (14-25, 11-25, 12-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 6 stig og Valgeir Elís Hafþórsson skoraði 4 stig.

Á morgun er annar frídagur mótsins en síðustu leikir riðlakeppninnar fara fram á þriðjudag og miðvikudag. Á þriðjudaginn mætir Ísland liði Finnlands og hefst sá leikur klukkan 15:30.