Frábær árangur Búlgaríu á heimsmeistaramótinu í Filipseyjum hefur sennilega ekki farið framhjá neinum. Búlgaría fór taplaust í gegnum sinn riðil og hefur aðeins tapað 5 hrinum á mótinu.
Búlgaría komst í gær í úrslitaleikinn eftir 3-1 sigur á Tékklandi en liðið hefur aðeins einu sinni áður komist í úrslitaleik á heimsmeistaramóti, árið 1970 þegar Búlgaría mætti Austur Þýskalandi á heimavelli í Búlgaríu. Búlgaría mætir Ítalíu í úrslitaleiknum kl 10:30.
Liðið hefur tekið ótrúlegum breytingum eftir að núverandi þjálfari , ítalinn Gianlorenzo Blengini tók við í maí á síðasta ári. Og þá má einna helst benda á unga leikmenn liðsins og þá helst bræðurna Aleksandar Nikolov (21 árs) og Simeon Nikolov (18 ára). Bræðurnir eru synir Vladimir Nikolov sem var lengi vel fyrirliði búlgarska liðsins. Meðalaldur búlgarska liðsins á heimsmeistaramótinu er 22,7 ár.
Aleksandar Nikolov er kantsmassari og leikur með ítalska liðinu Cucine Lube Civitanova á meðan yngri bróðirinn, Simeon Nikolov (Moni) er uppspilari í rússneska liðinu VC Lokomotiv Novosibirsk.
Aleksandar Nikolov er stigahæstur á mótinu til þessa með 150 stig, þ.a. 133 sóknarstig. Alessandro Michieletto stigahæsti leikmaður Ítalíu er aðeins með 82 stig og því ólíklegt að hann nái Aleksandar á stigum. Simeon Nikolov er svo í öðru sæti yfir bestu tölfræði uppspilara á mótinu en Moni er þekktur fyrir gífurlega öflugar uppgjafir og hefur hann skorað 12 stig beint úr uppgjöf á mótinu og stendur sem er í þriðja sæti yfir stigahæstu leikmenn úr uppgjöf. Það má hinsvegar telja ansi ólíklegt að hann nái efsta sætinu en til þess þarf hann að skora að lágmarki 6 stig úr uppgjöf á móti Ítalíu í úrslitaleiknum.
Það verður því ansi fróðlegt að fylgjast með Búlgaríu mæta ríkjandi heimsmeisturum Ítalíu í úrslitaleiknum sjálfum.
Búlgaría – Ítalía hefst kl 10:30 og er hægt að sjá hér.