Flott byrjun gegn Pólverjum í fyrsta leik EM

Mynd: CEV

Í dag hófst lokakeppni EM U18 í karlaflokki en Ísland tekur þátt í mótinu líkt og í kvennaflokki. Leikið er í tveimur riðlum en báðir fara þeir fram á Ítalíu. Annar riðillinn fer fram í Porto San Giorgio en hinn í Cisterna di Latina. Ísland leikur í Porto San Giorgio og verður liðið þar næstu níu dagana hið minnsta.

Það var smá skjálfti í íslenska liðinu í upphafi leiks en þeir hristu það fljótt af sér. Fyrsta hrina gekk þokkalega en þrátt fyrir fínar skorpur vann Pólland hrinuna örugglega. Ísland hélt sínu striki og byrjaði vel í annarri hrinu. Íslensku strákarnir héldu vel í við þá pólsku og náðu að rjúfa 20 stiga múrinn í hrinunni. Eftir erfiða byrjun í þriðju hrinu komust strákarnir á flug og með góðum lokakafla náðu þeir að minnka muninn hressilega. Pólland vann þó 0-3 sigur en fyrsti leikur íslenska liðsins lofaði góðu gegn sterkum andstæðingum.

Ísland 0-3 Pólland (15-25, 20-25, 22-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 12 stig fyrir Ísland og Símon Þór Gregorsson bætti við 6 stigum.

Markús Freyr Arnarsson er fyrirliði íslenska liðsins á mótinu. (Mynd: CEV)

Næsti leikur liðsins verður strax á morgun þegar Ísland mætir Serbíu. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma. Leikjaplan riðlanna tveggja má finna með því að smella hér. CEV hefur sýnt frá leikjum mótsins á YouTube síðu sinni og má gera ráð fyrir að allir leikir verði sýndir þar.

Á morgun halda U18 stelpurnar einnig áfram leik þegar þær mæta Tyrklandi klukkan 14:30. Leikurinn verður sá næstsíðasti hjá liðinu þetta mótið.