Alþjóða blaksambandið (FIVB) staðfestir að nokkrar reglubreytingar verða til prufu í sumar en reglurnar verða prufaðar í Þjóðardeildinni (VNL) og á heimsmeistaramótum yngri landsliða.
Eftirfarandi reglur verða til skoðunar:
Túlkun á tvíslagi
Tvíslag verður áfram leyft í annarri snertingu svo lengi sem boltinn haldist innan liðs, engin breyting verður þar á.
Uppstilling móttökuliðs
Móttökulið verður að vera í réttri stöðu þegar dómari flautar á uppgjöf en leikmönnum er hinsvegar heimilt að hlaupa í sínar stöður um leið og uppgjafari byrjar sínar hreyfingar í uppgjöfinni. Ekki verður lengur krafa um að móttökulið bíði eftir uppkasti uppgjafara. Leikmenn móttökuliðs verða áfram að vera innan síns vallar þangað til uppgjafari slær boltann.
Skiptingar
Fjölgun skiptinga úr 6 í 8 í hverri hrinu.
Leikmannahópur (Roster)
Leikmannahópur má enn telja allt að 14 leikmenn en nú þarf lið með 13 eða 14 leikmenn aðeins að tilnefna 1 frelsingja í stað 2.
Bolti í loft
Ef að fyrsta eða önnur snerting fer í loftið fyrir ofan leiksvæði móttöku/varnar liðs og heldur sér innan vallarhelmings móttöku/varnarliðs þá heldur leikurinn áfram. Fari boltinn hinsvegar í loftið og svo yfir á vallarhelming andstæðings, þá er boltinn dæmdur úr leik.
Mok-grip (Push-Carry-Catch-Throw-Tip)
Hert verður á reglu varðandi mok/grip en öll sóknar “slög” sem ekki eru hrein verða ekki leyfð. Óheimilt verður að moka/ýta boltanum yfir hvort sem um er að ræða snertingu með einni eða báðum höndum. Slag verður að vera hreint.
Færri flaut dómara
Aðaldómari þarf ekki lengur að flauta þegar um augljósa “dóma” er að ræða. Þ.e.a.s. þegar boltinn lendir greinilega inni eða úti, uppgjöf sem fer ekki yfir net eða snertingu úr hávörn sem endar greinilega fyrir utan völl.
Upphitun
Hvert lið fær 90 sekúndur til að nota í uppgjafir eftir að lið hafa klárað hefðbundnar 8 mínútur í upphitun við net. Lið A byrjar að gefa upp og eftir 90 sekúndur kemur lið B og fær sínar 90 sekúndur.
Aðalþjálfari fær að ræða við dómara
Aðalþjálfari fær að ræða við aðstoðardómara (Aðaldómara þegar notast er við FIVB layout á velli). Þjálfara er eingöngu heimilt að gera grein fyrir beiðni um “Challenge” eða fá útskýringu á dóm. Áfram verður þjálfara óheimilt að mótmæla dómi.
Auk þess eru tvær reglur er varða notkun á “Challenge system” sem ekki er notað hér á landi.
Það skal tekið skýrt fram að allar þessar hugsanlegu breytingar eru í skoðun og verða aðeins prufaðar á vegum FIVB í sumar. Engar af þessum reglum hafa verið samþykktar.