Langt er liðið á EM karla í blaki en í kvöld lauk 8-liða úrslitum keppninnar. Ítalía lenti í vandræðum gegn spræku liði Finnlands.
Fyrri helmingur leikjanna í 8-liða úrslitum fór fram í gær en seinni tveir leikirnir í dag. Slóvenía mætti Belgíu í fyrri leik dagsins og var mikið jafnræði með liðunum. Jafnt var á öllum tölum í fyrstu tveimur hrinunum en í báðum tilvikum var Slóvenía skrefinu á undan. Slóvenar unnu báðar hrinur naumlega en Belgía minnkaði muninn í 2-1 með góðri þriðju hrinu. Það dugði skammt þar sem Slóvenía valtaði yfir Belgana í fjórðu hrinu og tryggði 3-1 sigur. Slóvenía varð þar með þriðja liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum og mætir þar Póllandi á föstudag.
Ítalía mætti Finnlandi í Torino og voru það heimamenn sem byrjuðu leikinn betur. Ítalía hafði nauma forystu út fyrstu hrinuna og vann nauman sigur. Önnur hrinan var jöfn framan af en nú var það Finnland sem gerði betur á lokakaflanum og vann eftir upphækkun. Finnland vann svo óvæntan og afar auðveldan sigur í þriðju hrinunni og leiddi leikinn 2-1. Joonas Jokela raðaði inn stigum fyrir Finnland sem setti mikla pressu á Ítali. Ítalska liðið kreisti fram sigur í fjórðu hrinu og því réðust úrslitin í oddahrinu.
Ítalía virtist ætla að tryggja sér sigurinn en Finnland sneri dæminu við og tryggði sér sæti í undanúrslitum í annað sinn í sögunni. Árið 2007 endaði liðið í 4. sæti og stefnir því á fyrstu verðlaun sín á EM. Finnland mætir Frakklandi í undanúrslitum.
Slóvenía og Pólland ríða á vaðið og leika fyrri undanúrslitaleikinn á föstudag. Frakkland og Finnland mætast síðan í seinni leiknum. Báðir leikir verða í beinni útsendingu á EuroVolleyTV eins og aðrir leikir keppninnar.
Úrslit dagsins – 23. september
Belgía 1-3 Slóvenía (22-25, 22-25, 25-20, 13-25). Ferre Reggers skoraði 23 stig en Rok Možič skoraði 18 stig fyrir Slóveníu.
Ítalía 2-3 Finnland (25-21, 26-28, 16-25, 25-20, 13-15). Yuri Romanò skoraði 20 stig fyrir Ítalíu en Joonas Jokela skoraði 28 stig fyrir Finnland.
Undanúrslit – 25. september
Slóvenía – Pólland
Finnland – Frakkland