Önnur umferð riðlakeppni HM karla kláraðist í dag. Enn og aftur var nóg af spennandi leikjum og óvæntum úrslitum.
Brasilía byrjaði keppnisdaginn á sannfærandi sigri gegn Tékklandi en leikurinn varð aldrei spennandi. Brasilía fer því upp úr riðlinum en Tékkland, Serbía og Kína berjast um seinna sætið. Argentína vann þá Suður-Kóreu í C-riðli í nokkuð jöfnum leik og komu sér í góða stöðu fyrir lokaleikina.
Hinn leikurinn í C-riðli var viðureign Frakklands og Finnlands sem fór alla leið í oddahrinu. Finnland vann hana sannfærandi og náði því í mjög óvæntan 2-3 sigur gegn ríkjandi Ólympíumeisturum Frakka. Þar með er allt komið á hvolf í riðlinum en Argentína, Frakkland og Finnland geta öll farið áfram. Frakkland og Argentína mætast á fimmtudag en Finnland mætir Suður-Kóreu.

A-riðill er æsispennandi en heimamenn frá Filippseyjum unnu óvæntan sigur á Egyptalandi. Þá vann Íran gegn Túnis og því eru öll liðin með einn sigur eftir tvo leiki. Það verður því allt undir í lokaleikjum riðilsins.
Úkraína mætti Alsír í F-riðli og hélt lífi í sinni baráttu um sæti í útsláttarkeppninni með auðveldum 3-0 sigri. Í sama riðli mættust Ítalía og Belgía þar sem ríkjandi heimsmeistarar Ítalíu þóttu líklegri aðilinn fyrirfram. Belgía byrjaði mjög vel og vann fyrstu tvær hrinurnar áður en Ítalía vann næstu tvær. Oddahrinan var hnífjöfn en að lokum vann Belgía með minnsta mun. Þeir eru því öruggir með sæti í 16-liða úrslitum en Ítalía mætir Úkraínu í úrslitaleik um sæti í útsláttarkeppninni.

Brasilía 3-0 Tékkland (25-11, 25-22, 25-18). Alan skoraði 12 stig fyrir Brasilíu en Lukas Vasina skoraði 14 stig fyrir Tékkland.
Argentína 3-1 Suður-Kórea (25-22, 23-25, 25-21, 25-18). Pablo Kukartsev skoraði 21 stig fyrir Argentínu og Luciano Vicentin bætti við 20 stigum. Hjá Suður-Kóreu var Subong Heo með 17 stig.
Íran 3-1 Túnis (23-25, 25-20, 25-23, 25-16). Poriya Khanzadeh skoraði 21 stig fyrir Íran en hjá Túnis voru þeir Oussama Ben Romdhane og Ali Bongui báðir með 14 stig.
Úkraína 3-0 Alsír (25-17, 25-12, 25-11). Dmytro Yanchuk skoraði 18 stig fyrir Úkraínu en Sidi Mohamed Dour skoraði 9 stig fyrir Alsír.
Filippseyjar 3-1 Egyptaland (29-27, 23-25, 25-21, 25-21). Fyrirliðinn Bryan Bagunas skoraði 25 stig fyrir Filippseyjar og Leo Ordiales bætti við 21 stigi. Hjá Egyptalandi var Seif Abed atkvæðamestur með 15 stig.

Frakkland 2-3 Finnland (19-25, 25-17, 27-29, 25-21, 9-15). Jean Patry skoraði 23 stig fyrir Frakkland en Joonas Jokela skoraði 20 stig fyrir Finnland.
Serbía 3-0 Kína (25-18, 25-19, 29-27). Drazen Luburic skoraði 17 stig fyrir Serbíu en hjá Kína var Bin Wang stigahæstur með 16 stig.
Ítalía 2-3 Belgía (23-25, 20-25, 25-22, 25-21, 13-15). Mattia Bottolo skoraði 17 stig og Alessandro Michieletto bætti við 16 stigum fyrir Ítalíu. Ferre Reggers átti svakalegan leik og skoraði 30 stig fyrir Belgíu.
Næstu tvo daga fara lokaleikir riðlakeppninnar fram og kemur þá endanlega í ljós hvaða lið fara í 16-liða úrslitin. Útsláttarkeppnin hefst á laugardag 20. september en liðin fá öll frí föstudaginn 19. september.
Slóvenía og Þýskaland spila eins konar úrslitaleik þar sem sigurliðið fylgir Búlgaríu áfram úr riðlinum. Einnig er vert að fylgjast með D-riðli þar sem annað hvort Portúgal eða Kúba fara í 16-liða úrslitin með liði Bandaríkjanna.
Leikir morgundagsins – Miðvikudagur 17. september
- Portúgal – Kólumbía 02:00
- Katar – Rúmenía 02:30
- Búlgaría – Síle 05:30
- Kanada – Tyrkland 06:00
- Bandaríkin – Kúba 09:30
- Pólland – Holland 10:00
- Slóvenía – Þýskaland 13:00
- Japan – Líbía 13:30