Erfitt gegn Spánverjum

Eftir kærkominn frídag á laugardag fór Evrópumót U18 í kvennaflokki aftur af stað í dag. Ísland mætti Spáni en spænska liðið hafði unnið tvo af þremur leikjum sínum til þessa.

Leikur dagsins byrjaði afar brösuglega en Spánn náði fljótlega þægilegu forskoti. Það sama átti við í annarri hrinu en í báðum hrinum vann spænska liðið örugga sigra og leiddi 0-2. Allt annað var að sjá til íslenska liðsins í þriðju hrinu en Ísland var yfir um miðja hrinu. Betur gekk að setja pressu á Spánverjana sem gerðu fleiri mistök en í fyrri hrinunum. Spánn átti þó afar góðan lokakafla og sigldi heim naumum sigri í þriðju hrinunni. Spánn vann leikinn þar með 0-3 þrátt fyrir ágætis endurkomu hjá íslensku stelpunum. Anika Snædís Gautadóttir var valin leikmaður leiksins í liði Íslands.

Ísland 0-3 Spánn (7-25, 8-25, 21-25). Þorbjörg Rún Emilsdóttir skoraði 6 stig fyrir Ísland en Katla Fönn Valsdóttir og Alexandra Björg Andradóttir skoruðu 3 stig hvor.

Stelpurnar mæta Belgíu á morgun en leikurinn hefst klukkan 14:30 að íslenskum tíma. Drengjalið Íslands hélt til Ítalíu í dag en þeir hefja leik á lokamóti EM næstkomandi þriðjudag. Fyrsti leikur drengjanna verður gegn Póllandi og hefst klukkan 10:30 að íslenskum tíma.