Kvennalið Völsungs lék sinn annan heimaleik þessa helgina þegar liðið mætti Aftureldingu í dag. Liðin eru í harðri baráttu um miðja deild. Á toppi Unbroken deildar kvenna eru HK og KA en þau hafa nú þegar stungið önnur lið af í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. Þéttur pakki er þar fyrir aftan þar sem að Völsungur, Þróttur R/BFH og Afturelding berjast um 3. sæti deildarinnar. Með sigri á HK í gær tyllti Völsungur sér í 3. sætið um sinn en litlu munaði á þessum liðum.
Leikur dagsins fór furðulega af stað þar sem að Afturelding virtist einfaldlega ekki mæta til leiks. Völsungur vann 25-9 sigur og setti tóninn fyrir framhaldið. Afturelding byrjaði mun betur í annarri hrinu og leiddi framan af henni. Undir lokin reyndust heimakonur sterkari þar sem þær skoruðu síðustu 5 stig hrinunnar. Enn var jafnt með liðunum í þriðju hrinu og þurfti upphækkun til að útkljá hana. Völsungur náði að kreista fram sigur og vann leikinn þar með 3-0.
Völsungur vann þar með tvo sterka sigra þessa helgina og situr nú í 3. sæti með 14 stig eftir 9 leiki. Afturelding dregst hins vegar aftur úr og er með 8 stig eftir 10 leiki. Völsungur á enn einn heimaleikinn á miðvikudag þegar liðið fær KA í heimsókn. Næsti leikur Aftureldingar verður þann 6. desember en þá helgi mætir liðið Þrótti Fjarðabyggð tvívegis. Með góðum úrslitum þar gætu Mosfellingar hæglega komið sér aftur inn í baráttuna um 3. sæti deildarinnar.
Völsungur 3-0 Afturelding (25-9, 25-21, 27-25).