Drengirnir náðu í gull og sæti á EM

Mynd: Volleyball Ireland

Íslensku drengirnir í U18 landsliðinu mættu í dag Írlandi í lokaleik sínum á Evrópumóti Smáþjóða.

Ísland hafði unnið alla leiki sína á mótinu og var með fullt hús stiga fyrir leikinn gegn Írlandi. Þeim dugði að vinna tvær hrinur til að vinna mótið og þar með tryggja sæti í lokakeppni EM í þessum aldursflokki. Þeir byrjuðu vel gegn Írlandi í dag en eftir jafna byrjun í fyrstu hrinu unnu íslensku strákarnir örugglega, 16-25. Áfram héldu þeir að þjarma að heimamönnum í annarri hrinu og byggði íslenska liðið smám saman upp þægilegt forskot. Sterkar uppgjafir gerðu þeim írsku erfitt fyrir og áttu þeir fá svör við leik Íslendinganna.

Ísland kláraði hrinuna af krafti og vann afar sannfærandi 16-25 sigur. Þar með var gullið tryggt og sætið á EM einnig. Strákarnir létu þetta ekki hafa áhrif á sig og héldu áfram af fullum krafti inn í þriðju hrinuna. Þar unnu þeir 15-25 og gulltryggðu efsta sætið á mótinu. Ísland vann alla fjóra leiki sína og endaði með fullt hús stiga.

Glæsilegur árangur hjá drengjunum sem geta hlakkað til að taka þátt í lokakeppni EM.