Í dag var dregið í undanúrslit í Kjörísbikar karla og kvenna en dregið var í höfuðstöðvum Kjörís í Hveragerði.
Úrslitahelgi Kjörísbikarsins er ávalt einn stærsti viðburðurinn á hverju ári hjá Blaksambandinu en “Final4” helgin eins og hún er kölluð, fer fram í Digranesi dagana 12.-14. mars.
Í pottinum voru eftirfarandi lið:
Kjörísbikar Karla:
Afturelding, Hamar, Völsungur, Þróttur Fjarðarbyggð
Kjörísbikar Kvenna:
Afturelding, HK, KA, Þróttur R/BFH
FINAL 4 – Kjörísbikarinn
Undanúrslit kvenna – 12.03
17:00 HK – Afturelding
19:30 Þróttur R/BFH – KA
Undanúrslit karla 13.03
17:00 Völsungur – Afturelding
19:30 Hamar – Þróttur Fjarðarbyggð
Úrslitaleikirnir fara svo fram laugardaginn 14.03
Úrslitaleikur kvenna 13:00
Úrslitaleikur karla 15:30