Danska úrslitakeppnin farin af stað

Í síðustu viku spiluðu liðin í dönsku deildinni sína síðustu leiki í deildarkeppninni. Kvennalið Holte IF, þar sem Sara Ósk leikur, endaði í efsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan ASV Elite.

Karla megin stóð lið Hreins Kára, Middelfart VK, uppi sem sigurvegari deildarinnar eftir ósigrað tímabil. Lið þeirra Mána og Galds, Odense Volleyball, hafnaði í þriðja sæti eftir 9 sigra af 16 leikjum.

Hér fyrir neðan má sjá stöðuna að loknu grunnspili:

KK                                                                            KVK

Úrslitakeppnin hófst um helgina með leikjum í átta liða úrslitum. Karla megin keppa átta efstu liðin um sæti í undanúrslitum, en kvenna megin hafa tvö efstu liðin þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Liðin í 3.–6. sæti mætast um hin tvö sætin í undanúrslitum.

Það þýðir að Holte IF situr hjá í fyrstu umferð og bíður eftir að fá að vita hverjum liðið mætir í undanúrslitum. Middelfart VK, sem vann deildina, mætir liðinu í 8. sæti, Amager VK, á meðan Odense Volleyball spilar gegn VK Vestsjælland, sem hafnaði í 6. sæti.

Hægt er að fylgjast með öllum leikjum dönsku úrslitakeppninnar inn á eftirfarandi síðu:

https://direktesport.dk/