Danska deildin farin á fullt skrið eftir áramót

Danska deildin er farin á fullt skrið á ný eftir jólafrí og hafa lið íslendinganna leikið þó nokkra leiki á fyrstu vikum ársins. Nú fer einnig að styttast í lok deildarkeppninnar, en tæplegur mánuður er eftir áður en úrslitakeppnin hefst þar sem keppt verður um danska meistaratitilinn.

Odense Volleyball

Odense Volleyball, þar sem Galdur Máni og Máni Matthíasson leika, hófu árið á heimaleik þann 14. janúar gegn toppliði Middelfart VK. Með Middelfart leikur Hreinn Kári og var því búist við hörkuleik í sannkölluðum Íslendingaslag. Leikurinn endaði með sigri Middelfart í oddahrinu 2–3 (23-25, 25-23, 25-19, 18-25, 9-15).

17. janúar tók Odense á móti Nordenskov á heimavelli og sigraði leikinn 3–0 (25-15, 26-24, 25-23).

24. janúar fengu Odense Volleyball Gentofte í heimsókn og þar náði Odense fram hefndum með sannfærandi 3–0 sigri (25-18, 25-15, 25-17).

Þann 28. janúar héldu Odense til Aarhus þar sem þeir mættu ASV Elite, en heimamenn höfðu betur og sigruðu 3–1 (25-21, 25-22, 17-25, 25-23).

Föstudaginn 6. febrúar tók Odense síðan á móti Amager og tryggði sér 3–0 sigur (25-21, 26-24, 25-23).

Odense Volleyball hefur því átt góða törn eftir áramót og situr nú í 4. sæti deildarinnar. Næsti leikur liðsins er 14. febrúar þegar þeir halda til Kaupmannahafnar og mæta Hvidovre VK.


Middelfart VK

Middelfart VK, þar sem hann Hreinn Kári leikur sat á toppi deildarinnar fyrir áramót. Eftir 4. sæti í bikarkeppninni og jólafrí hófu þeir seinni part tímabilsins þann 10. janúar með útileik gegn Amager. Þar sýndi liðið styrk sinn og sigraði sannfærandi 3–0 (25-10, 25-19, 25-18).

Næsti leikur var 14. janúar gegn Odense Volleyball í æsispennandi Íslendingaslag, þar sem Middelfart hafði betur í oddahrinu, 2–3.

18. janúar tóku þeir á móti Hvidovre og unnu öruggan 3–0 sigur (25-20, 25-23, 25-13).

Þann 29. janúar fengu Middelfart Ikast í heimsókn og unnu 3–1 eftir spennandi leik (25-27, 29-27, 25-21, 25-19).

Laugardaginn 7. febrúar mættu þeir VK Vestsjælland og tryggðu sér 3–1 sigur (25-15, 22-25, 25-22, 25-17).

Middelfart trónir því enn á toppi deildarinnar, ósigraðir. Næsti leikur liðsins er 14. febrúar þegar þeir mæta Gentofte í Kaupmannahöfn.


Holte IF

Holte IF hóf árið á Evrópukeppni þegar liðið mætti serbnesku liði í CEV Challenge Cup. Þar lauk ævintýrinu í Challenge Cup eftir tap, sem þýddi jafnframt að leikjaálag liðsins minnkaði eftir langan og krefjandi fyrri hluta tímabilsins með mörgum leikjum og ferðalögum.

Fyrsti leikur Holte í dönsku deildinni á árinu var heimaleikur gegn Gentofte þann 10. janúar, þar sem Holte sigraði örugglega 3–0 (25-19, 25-23, 25-18).

Í mikilvægum heimaleik gegn ASV Elite þann 24. janúar þar sem barist var um efsta sæti deildarinnar, hafði ASV betur og sigruðu leikinn 1–3 (25-14, 23-25, 19-25, 16-25). Þar með lauk sigurgöngu liðsins í deildinni, en Holte hafði ekki tapað leik í nærri tvö ár í dönsku deildinni. Þrátt fyrir tapið hélt Holte toppsætinu, þar sem ASV hafði misst stig fyrr á tímabilinu.

Í kjölfarið mætti liðið systurliði sínu Farum VK og tryggði sér sannfærandi 3–0 sigur (25-16, 25-16, 25-11).

Mánudaginn 2. febrúar fóru Holte í heimsókn til Brøndby í afar mikilvægan leik. Þar þurfti liðið nauðsynlega á þremur stigum að halda til að halda fyrsta sætinu, Holte sigraði sannfærandi 3–0 sigur (14-25, 16-25, 14-25) og heldur sér þar með í 1. sæti deildarinnar ef þær vinna restina af leikjunum sínum.

Holte átti að mæta Ikast föstudaginn 6. febrúar, en vegna veðurs var leiknum frestað til fimmtudagsins 12. febrúar.