Cev Challenge Cup ævintýrinu lýkur hjá Söru og félögum

Ævintýri Holte IF í evrópsku CEV Challenge Cup keppninni lauk í gærkvöldi, miðvikudaginn 15. janúar, þegar liðið mátti þola 0–3 tap gegn Crvena Zvezda Beograd í Serbíu í seinni leik 1/8 liða úrslita keppninnar (11–25, 20–25, 19–25).

Holte átti möguleika á að tryggja sér sögulegt sæti í átta liða úrslitum eftir 3–1 tap á heimavelli í fyrri leiknum. Til þess þurfti liðið að vinna 3–0 eða 3–1 og knýja fram gullhrinu. Heimamenn í Belgrad voru þó ákveðnir í að láta það ekki gerast og komu af krafti inn í leikinn strax frá fyrsta stigi.

Crvena Zvezda náði snemma yfirhöndinni og setti Holte undir mikla pressu, sem gerði gestunum erfitt fyrir að finna taktinn. Smám saman náði Holte þó betri fótfestu og önnur hrina varð hörkuspennandi, þar sem bæði lið sýndu blak á mjög háu stigi. Um miðja hrinu tókst Serbum hins vegar að rjúfa sterka móttöku Holte með kröftugum uppgjöfum, sem gaf þeim forskotið og tryggði þeim hrinuna.

Þriðja hrinan náði ekki alveg sömu spennu af hálfu Holte, og þrátt fyrir mikla baráttu dugði það ekki til. Crvena Zvezda tryggði sér að lokum 3–0 sigur og sæti í átta liða úrslitum keppninnar.

Þar með lýkur evrópsku ferðalagi Holte IF í Challenge Cup að þessu sinni. Liðið fer þó heim reynslunni ríkara eftir sex alþjóðlega leiki á háu stigi og þrjá frábæra heimaleiki. Nú tekur við hjá Holte danska deildin og í framhaldi af því úrslitakeppnin um danska meistaratitilinn.

Leikmaður leiksins var Amalie Lachenmeier.