Búlgaría vann Þýskaland í ótrúlegum leik

HM karla fór vel af stað í gær þegar Túnis vann heimamenn frá Filippseyjum nokkuð örugglega. Í dag var svo þétt dagskrá þar sem átta leikir fóru fram.

Stórveldin frá N-Ameríku, Bandaríkin og Kanada, byrjuðu vel en Kanada lenti þó í vandræðum í kaflaskiptum leik gegn Líbíu. Bandaríkin unnu auðveldan sigur gegn Kólumbíu eins og við var að búast. Portúgal vann óvæntan en nokkuð sannfærandi sigur gegn Kúbu og sömuleiðis byrjaði Tyrkland frábærlega þegar liðið lagði Japan 3-0.

Stórleikur dagsins var viðureign Þýskalands og Búlgaríu en þar fóru Nikolov bræður á kostum. Alex Nikolov skoraði 28 stig í aðeins þremur hrinum og Búlgaría vann 3-0 sigur í annars mjög jöfnum leik. Fyrstu hrinu vann Búlgaría 40-38 eftir æsispennu. Þá vann Holland tæpan sigur á Katar og Slóvenía vann Síle án nokkurra vandræða.

Í lokaleik dagsins mættu Pólverjar spræku liði Rúmeníu. Eftir rosalega fyrstu hrinu, sem Pólland vann 34-32, hafði pólska liðið yfirburði og vann á endanum þægilegan 3-0 sigur.

Bandaríkin 3-0 Kólumbía (25-20, 25-21, 25-14). Ethan Champlin skoraði 17 stig fyrir Bandaríkin en Amaranto skoraði 11 stig fyrir Kólumbíu.

Kanada 3-1 Líbía (22-25, 25-20, 25-12, 29-27). Sharone Vernon-Evans skoraði 22 stig fyrir Kanada og Nicholas Hoag bætti við 20 stigum. Hjá Líbíu voru bræðurnir Ahmed og Mohamed Ilkhbayri með 17 stig hvor.

Kúba 1-3 Portúgal (25-20, 22-25, 19-25, 19-25). Marlon Yant var atkvæðamikill hjá Kúbu og skoraði 19 stig en Portúgalinn Nuno Marques skoraði sömuleiðis 19 stig fyrir sigurliðið.

Japan 0-3 Tyrkland (19-25, 23-25, 19-25). Kento Miyaura skoraði 13 stig fyrir Japan. Efe Mandiraci skoraði 17 stig fyrir Tyrkland og Adis Lagumdzija bætti við 15 stigum.

Kento Miyaura lætur vaða gegn vígalegri hávörn Tyrkja (Mynd: FIVB)

Þýskaland 0-3 Búlgaría (38-40, 22-25, 20-25). György Grozer skoraði 13 stig fyrir Þýskaland en Alex Nikolov gerði sér lítið fyrir og skoraði 28 stig fyrir Búlgaríu.

Holland 3-1 Katar (25-18, 25-23, 26-28, 25-23). Michiel Ahyi skoraði 20 stig fyrir Holland en Youssef Oughlaf skoraði 17 stig fyrir Katar.

Slóvenía 3-0 Síle (25-19, 25-20, 25-16). Toncek Stern var atkvæðamestur í liði Slóveníu með 15 stig en hjá Síle var Vicente Parraguirre stigahæstur með 12 stig.

Pólland 3-0 Rúmenía (34-32, 25-15, 25-19). Wilfredo Leon skoraði 14 stig fyrir Pólland og Bartosz Kurek bætti við 13 stigum. Robert Aciobanitei var stigahæstur Rúmena með 11 stig.

Veislan heldur áfram með öðrum sjö leikjum á sunnudag. Þá verða öll lið búin að spila sinn fyrsta leik á mótinu en liðin fá almennt einn frídag milli leikja í riðlakeppninni. Á morgun koma mörg sterk lið til leiks en þar má nefna Frakkland, Brasilíu og Ítalíu.

Leikir morgundagsins – Sunnudagur 14. september

  • Argentína – Finnland 02:30
  • Íran – Egyptaland 05:30
  • Úkraína – Belgía 06:00
  • Serbía – Tékkland 09:30
  • Frakkland – Suður-Kórea 10:00
  • Brasilía – Kína 13:00
  • Ítalía – Alsír 13:30