Búlgaría mætir Tékklandi í undanúrslitum HM

Síðustu leikir 8-liða úrslitanna fóru fram í dag en í gær tryggðu Ítalía og Pólland sér sæti í undanúrslitum.

Tékkland hefur komið skemmtilega á óvart á mótinu en eftir að Tékkóslóvakía skiptist upp hefur liðið aldrei náð hærra en 10. sæti á HM. Þeir voru því búnir að bæta sinn besta árangur fyrir leik dagsins en voru aldeilis ekki hættir. Íran hefur lengi vel átt öflug blaklandslið karlamegin og þeir hafa einnig átt góðar skorpur eftir vandræði í riðlakeppninni. Besti árangur Íran á HM kom árið 2014 þegar liðið endaði í 6. sæti.

Leikur dagsins var frábær skemmtun enda bæði lið lífleg og áræðin. Íran byrjaði betur en lítið skildi á milli liðanna í fyrstu tveimur hrinum leiksins. Þegar leið á leikinn náðu Tékkar yfirhöndinni og voru nokkuð sannfærandi í sínum leik. Tékkland knúði fram 3-1 sigur og fer í undanúrslit HM í fyrsta sinn.

Patrik Indra (23) hefur átt frábært mót og ekki breyttist það í leik dagsins (Mynd: FIVB)

Í seinni viðureigninni, þeirri síðustu í 8-liða úrslitum, mættust Bandaríkin og Búlgaría. Bæði lið voru taplaus á mótinu og staðráðin í að sækja verðlaun. Bandaríkin eru með mikið breyttan hóp frá síðustu stórmótum en engu að síður hefur liðið leikið afar vel. Búlgaría treystir mikið á Nikolov bræðurna í sínu spili en þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir báðir náð langt á sínum ferlum. Simeon (fæddur 2006) er uppspilari liðsins og Alex (2003) er kantur/díó og jafnframt einn stigahæsti leikmaður mótsins.

Leikurinn olli engum vonbrigðum og var æsispennandi frá upphafi til enda. Bandaríkjamenn byrjuðu betur og virtust hafa góð tök á leiknum þegar þeir komust 2-0 yfir. Búlgaría svaraði með því að vinna næstu tvær hrinur og fór leikurinn því í oddahrinu. Þar var mikil dramatík undir lokin og Búlgaría vann með minnsta mun. Búlgarska liðið fer því í undanúrslit HM í fyrsta sinn síðan 2006 þegar liðið náði í bronsverðlaun. Besti árangur liðsins frá upphafi er 2. sæti svo nú er möguleiki á fyrsta gullinu.

Tékkland 3-1 Íran (22-25, 27-25, 25-20, 25-21). Patrik Indra var stigahæstur hjá Tékklandi með 22 stig og Lukas Vasina skoraði 21 stig. Hjá Íran voru þeir Poriya og Hajipour með 18 stig hvor.

Bandaríkin 2-3 Búlgaría (25-21, 25-19, 17-25, 22-25, 13-15). Ethan Champlin skoraði 17 stig fyrir Bandaríkin og Jordan Ewert bætti við 15 stigum. Alex Nikolov átti enn einn stórleikinn fyrir Búlgaríu og skoraði 29 stig.

Undanúrslit – Laugardagur 27. september – Tímasetningar auglýstar síðar

Tékkland – Búlgaría

Pólland – Ítalía