Evrópumót karla hófst í gær með tveimur leikjum en Búlgaría og Rúmenía léku á heimavöllum sínum.
Tveir af riðlunum fjórum hófust í gær en Búlgaría tók á móti liði Norður-Makedóníu á heimavelli sínum í Sofia. Búlgaría var mun sigurstranglegra liðið fyrir leik og lenti ekki í miklum vandræðum með Norður-Makedóníu. Búlgarska liðið vann þægilegan 3-0 sigur og byrjar mótið vel. Seinni leikur dagsins var viðureign Rúmeníu og Lettlands sem fram fór í Cluj-Napoca. Þar gerðu Lettar sér lítið fyrir og unnu 3-1 sigur eftir jafnan og spennandi leik. Það verður hörð barátta í D-riðlinum en með þessum sigri steig Lettland risastórt skref í átt að 16-liða úrslitunum.
Í dag fara sex leikir fram og fer fjörið að hefjast af fullri alvöru. Ríkjandi Evrópumeistarar Póllands mæta liði Portúgals en Tyrkland mætir Þýskalandi í afar áhugaverðum fyrsta leik þessara liða. Útsendingar frá leikjum mótsins má finna á EuroVolleyTV.
Úrslit gærdagsins – 9. september
Búlgaría 3-0 Norður-Makedónía (25-17, 25-19, 25-18). Aleksandar Nikolov skoraði 19 stig fyrir Búlgaríu.
Rúmenía 1-3 Lettland (24-26, 25-18, 21-25, 24-26). Stigaskor Lettlands dreifðist vel en Kristaps Smits skoraði 14 stig. Alexandru Rata var hins vegar stigahæstur á vellinum en hann skoraði 21 stig fyrir Rúmeníu.
Leikir dagsins – 10. september
13:00 Pólland – Portúgal
14:00 Frakkland – Sviss
16:00 Ísrael – Úkraína
17:00 Finnland – Danmörk
17:00 Tyrkland – Þýskaland
19:05 Ítalía – Svíþjóð