Í dag fór fram bronsleikur á heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi.
Það voru Japan og Brasilía sem mættust í leik um bronsið á HM í dag en bæði lið töpuðu sínum leikjum í undanúrslitum í gær. Japan tapaði 1-3 gegn Tyrklandi á meðan Brasilía tapaði 2-3 gegn Ítalíu.

Brasilía byrjaði leikinn vel í dag og var allt útlit fyrir að leiknum myndi ljúka með stuttum og öruggum sigri Brasilíu sem tóku fyrstu hrinu 25-12 og þá næstu 25-17.
Japan hefur hinsvegar sýnt það í gegnum tíðina að þær eru lið sem gefst aldrei upp. Með góðum sóknarleik náði Japan að jafna leikinn með sigri í næstu tveimur hrinum 25-19 og 29-27.
Brasilía náði hinsvegar að tryggja sér sína sjöttu medalíu á heimsmeistaramóti með sigri í oddahrinunni 18-16.
Japan – Brasilía 2-3 (12–25, 17–25, 25–19, 29–27, 16–18)

Stigahæst í leiknum í dag var líkt og svo oft áður hin brasilíska Gabi, Gabriela Braga Guimaraes með 35 stig. þ.a. 33 stig beint úr sókn. Næst á eftir henni kom hin japanska Yoshino Sato með 34 stig.
Kl 12:30 fer svo fram úrslitaleikurinn sjálfur þar sem Tyrkland og Ítalía mætast. Leikinn er hægt að sjá á VBTV.