Brasilía og Tyrkland áfram í undanúrslit á heimsmeistaramóti kvenna

Ebrar Karakurt leikmaður Tyrklands fagnar gegn Bandaríkjunum (Mynd: Volleyball World)

Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi í dag.

Brasilía – Frakkland 3-0 (2725, 3331, 2519)

Stigahæst í leiknum var Héléna Cazaute leikmaður Frakklands með 20 stig. Stigahæst í liði Brasilíu var Julia Isabelle Bergmann með 17 stig.

Bandaríkin – Tyrkland 1-3 (14-25, 25-22, 14-25, 23-25)

Stigahæst í leiknum var Ebrar Karakurt leikmaður Tyrklands með 23 stig. Stigahæst í liði Bandaríkjana var Sarah Franklin með 12 stig.

Leikmenn Brasilíu fagna stigi gegn Frakklandi (Mynd: Volleyball World)

Leikir í  undanúrslitum 6. September eru eftirfarandi:

  • Japan – Tyrkland, 08:30
  • Ítalía – Brasilía, 12:30