Borja González Vicente hættir sem afreksstjóri Blaksambands Íslands

Borja González Vicente hefur sagt upp störfum sem afreksstjóri Blaksambands Íslands og mun láta af störfum í lok september, eftir rúmlega tveggja ára starf hjá Blaksambandinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blaksambandinu en þar kemur einnig fram að á starfstíma sínum hefur Borja gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu afreksstarfs, landsliðsverkefna og alþjóðlegs samstarfs BLÍ.

“Á starfstíma sínum hefur Borja gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu afreksstarfs, landsliðsverkefna og alþjóðlegs samstarfs BLÍ. Með fagmennsku sinni, metnaði og reynslu hefur hann átt þátt í að styrkja umgjörð afreksstarfs innan íslensks blaks og lagt grunn að áframhaldandi þróun þess.

Borja hefur lagt áherslu á faglega uppbyggingu afreksstarfs og aukna þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Eins og víða í íslensku íþróttastarfi hefur sú vinna farið fram við krefjandi ytri aðstæður, meðal annars hvað varðar fjármagn, aðstöðu og mannafla. BLÍ mun byggja áfram á þeirri vinnu sem hefur verið unnin og nýta reynsluna í næstu skrefum við þróun afreksstarfs sambandsins.

Borja mun áfram sinna verkefnum fyrir BLÍ á næstu mánuðum og leiða þau afreksverkefni sem fram undan eru á tímabilinu. Hann mun meðal annars stýra strandblaksliðum Íslands á lokamóti Evrópumótsins sem fram fer í september.

Blaksamband Íslands mun á næstu vikum hefja undirbúning að ráðningu nýs afreksstjóra og leggja áherslu á að tryggja faglega yfirfærslu verkefna og áframhaldandi uppbyggingu afreksstarfs sambandsins.”

Tilkynninguna frá Blaksambandinu má nálgast hér.