Blakdeild Völsungs hefur ráðið Þórarinn Örn Jónsson sem spilandi þjálfara meistaraflokks karla

Blakdeild Völsungs hefur ráðið Þórarinn Örn Jónsson (Tóta) sem spilandi þjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi leiktíð.

Tóti er, þrátt fyrir ungan aldur, reynslumikill leikmaður og spilaði stórt hlutverk og var fyrirliði í liði Völsungs/Eflingar síðasta tímabil. Þá hefur hann komið víða við sem leikmaður og m.a. orðið danskur meistari og bikarmeistari með liði Odense Volleyball í Danmörku ásamt því að spila með Íslenska landsliðinu.

Það hefur verið stefna blakdeildar Völsungs að gefa ungu og efnilegu blakfólki tækifæri á stóra sviðinu. Öflugt starf undanfarin ár hefur skilað góðum árangri og hefur Völsungur alið upp marga góða leikmenn sem hafa staðið sig vel í efstu deild, öðlast dýrmæta reynslu og komist í landsliðshópa svo eitthvað sé nefnt.

Ráðningin sem hér um ræðir er því í algerum takti við það sem blakdeildin stendur fyrir, þ.e. að gefa ungu blakfólki tækifæri. Enginn getur öðlast reynslu ef engin eru tækifærin. Nú mun Tóti fá tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksþjálfun og hlökkum við til að fylgjast með honum og styðja við bakið á honum í þessu krefjandi verkefni.

Frétt tekin af heimasíðu Völsungs