Bella Haak setti stigamet í sigri

Fimm keppnisdögum er lokið á EM kvenna en riðlakeppnin er nú rúmlega hálfnuð.

Í gær bar hæst stigamet sem Isabelle Haak setti í leik Svíþjóðar gegn Króatíu. Þær króatísku náðu 0-2 forystu í leiknum en eftir það fór sænska liðið á flug. Haak fór fyrir liðinu eins og oft áður en í þetta skiptið skoraði hún heil 52 stig og setti stigamet á Evrópumóti kvenna. Hún er þar með orðin langstigahæst á mótinu með 135 stig í fjórum leikjum. Svíþjóð vann leikinn 3-2 eftir æsilega oddahrinu sem lauk 23-21.

Pólland vann Slóveníu í baráttu um toppsætin í A-riðli en Tyrkland og Pólland eru því ósigruð með þrjá sigra hvort. Bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum en nú er aðeins barist um örfá sæti í viðbót. Röðun liða innan riðlanna getur breyst töluvert en í þremur af riðlunum fjórum er aðeins eitt sæti í boði fyrir neðstu þrjú liðin.

Á miðvikudag heldur fjörið áfram með öðrum átta leikjum en nokkrir þeirra gætu orðið afar fróðlegir. Belgía freistar þess að verða fyrsta liðið til að vinna Azerbaijan en þær síðarnefndu hafa komið verulega á óvart í heimavelli sínum í Baku. Tyrkland reynir að halda sigurgöngu sinni áfram þegar liðið mætir Þýskalandi. Þá mætast Ítalía og Frakkland en bæði lið eru ósigruð til þessa.

A-riðill

Ungverjaland 0-3 Þýskaland (17-25, 21-25, 14-25). Anett Németh var stigahæst í leiknum en hún skoraði 16 stig fyrir Ungverjaland.

Pólland 3-0 Slóvenía (25-14, 28-26, 25-18). Magdalena Stysiak skoraði 24 stig fyrir Pólland.

B-riðill

Grikkland 3-1 Austurríki (20-25, 25-18, 25-12, 25-14). Martha Evdokia Anthouli skoraði 20 stig fyrir Grikkland.

Tékkland 3-1 Úkraína (25-17, 21-25, 25-19, 25-21). Monika Brancuska skoraði 21 stig fyrir Tékkland.

C-riðill

Rúmenía 0-3 Belgía (21-25, 20-25, 17-25). Pauline Martin skoraði 18 stig fyrir Belgíu.

Holland 3-0 Spánn (25-13, 25-11, 25-16). Marritt Jasper skoraði 12 stig fyrir Holland.

D-riðill

Ítalía 3-0 Slóvakía (25-19, 25-18, 25-20). Paola Egonu skoraði 19 stig fyrir Ítalíu.

Svíþjóð 3-2 Króatía (16-25, 22-25, 25-19, 25-16, 23-21). Eins og áður sagði skoraði Isabelle Haak 52 stig fyrir Svíþjóð en Samanta Fabris átti einnig frábæran leik og skoraði 33 stig fyrir Króatíu.