Belgía vann öruggan sigur gegn Íslandi

Ísland mætti Belgíu á EM U18 kvenna í dag. Keppnisdagurinn er sá fimmti á mótinu af sjö í riðlakeppninni.

Belgía hafði byrjað mótið nokkuð vel og vann meðal annars sterkan sigur gegn Tékklandi í gær. Belgísku stúlkurnar þjörmuðu hressilega að þeim íslensku í leik dagsins og voru sterkar uppgjafir liðsins Íslandi afar erfiðar. Íslenska liðið átti í erfiðleikum stærstan hluta leiksins en í öllum hrinunum náði Belgía þægilegu forskoti snemma. Íslandi reyndist þá erfitt að vinna upp muninn og lauk leiknum með öruggum 0-3 sigri Belgíu. Sylvía Ósk Jónsdóttir var valin leikmaður leiksins í liði Íslands.

Ísland 0-3 Belgía (12-25, 11-25, 12-25). Ása Margrét Kristjánsdóttir skoraði 4 stig fyrir Ísland en Emilía Dís Júlíusdóttir, Katrín Embla Sigurðardóttir og Þorbjörg Rún Emilsdóttir skoruðu 3 stig hver.

Á morgun tekur við annar frídagur hjá stelpunum en lokakaflinn hefst á miðvikudag. Ísland mætir Tyrklandi klukkan 14:30 á miðvikudag og svo Póllandi klukkan 12:00 á fimmtudag. Leikurinn gegn Póllandi verður lokaleikur liðsins á mótinu.

Drengjalið Íslands í U18 flokki er einnig á lokamóti EM en liðið hefur leik á morgun. Þar mæta þeir Póllandi í fyrsta leik klukkan 10:30.