Belgía og Slóvenía tryggðu sæti í 8-liða úrslitum

Síðasti keppnisdagur 16-liða úrslitanna á EM karla í blaki fór fram í dag. Ljóst er því hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum keppninnar sem hefjast strax á þriðjudag.

Belgía og Tékkland mættust í fyrri leik dagsins en mikil spenna var í upphafi leiks. Tékkland leiddi 1-0 og var hársbreidd frá því að ná 2-0 forystu. Belgía kreisti fram 26-24 sigur í annarri hrinu og eftir það var aðeins eitt lið á vellinum. Belgía vann þriðju og fjórðu hrinu auðveldlega sem tryggði 3-1 sigur þeirra og sæti í 8-liða úrslitum.

Seinni leikur dagsins var viðureign Slóveníu og Serbíu. Slóvenar náðu 2. sæti í A-riðli á eftir ítalska liðinu sem vann þann riðil. Serbar höfðu hins vegar lent í brasi í sínum riðli. Leikurinn varð aldrei spennandi en þrátt fyrir mótspyrnu Serba í þriðju hrinu vann Slóvenía auðveldan 3-0 sigur. Belgía og Slóvenía mætast því í 8-liða úrslitum en Serbía er úr leik líkt og Tékkland.

Á morgun fara fram tveir leikir í 8-liða úrslitunum en seinni tveir leikirnir fara fram á miðvikudag. Frakkland og Rúmenía ríða á vaðið í áhugaverðum leik. Rúmenar unnu franska liðið í riðlakeppninni en Frakkland verður þó að teljast líklegri aðilinn. Þá mætast Pólland og Þýskaland í seinni leik morgundagsins en Þjóðverjar unnu glæsilegan sigur á Búlgaríu í 16-liða úrslitunum. Pólland er hins vegar ríkjandi Evrópumeistari og eitt af allra sigurstranglegustu liðum mótsins.

Úrslit dagsins – Mánudagur 21. september

Belgía 3-1 Tékkland (20-25, 26-24, 25-14, 25-15). Ferre Reggers skoraði 24 stig fyrir Belgíu en Lukas Vasina og Patrik Indra skoruðu 14 stig hvor fyrir Tékkland.

Slóvenía 3-0 Serbía (25-14, 25-13, 25-22). Nik Mujanović skoraði 14 stig fyrir Slóveníu en Marko Ivovic skoraði 8 stig fyrir Serbíu.

8-liða úrslit – 22. – 23. september

Þriðjudagur 22. september: Frakkland – Rúmenía 13:00

Þriðjudagur 22. september: Pólland – Þýskaland 16:00

Miðvikudagur 23. september: Belgía – Slóvenía 14:00

Miðvikudagur 23. september: Ítalía – Finnland 19:05