Kvennalið Völsungs hefur fengið til liðs við sig hina 22 ára gömlu Claire Isaksen frá Bandaríkjunum.
Claire kemur frá háskólaliði Siena University í bandaríska háskólaboltanum og leikur stöðu uppspilara. Claire kemur ekki bara til með að styrkja lið Völsungs inná vellinum því hún kemur einnig til með að koma að þjálfun yngri flokka hjá félaginu.