Bandaríkin unnu Slóveníu í 16-liða úrslitunum

HM fjörið hélt áfram í dag með tveimur mjög svo áhugaverðum leikjum. Búlgaría mætti sprækum Portúgölum en Bandaríkin áttu hörkuleik við Slóveníu.

Búlgaría lék mjög vel í riðlakeppninni og vann þar sigra gegn sterkum liðum Þýskalands og Slóveníu. Þeir mættu Portúgal í fyrri leiki dagsins en þeir portúgölsku skildu Kúbu eftir í D-riðli. Búlgarar byrjuðu leikinn vel en Portúgal kom til baka í annarri hrinu. Það dugði ekki til og í kjölfarið valtaði Búlgaría yfir þá portúgölsku í þriðju hrinu. Búlgaría vann leikinn því sannfærandi og flýgur inn í 8-liða úrslitin.

Seinni leikurinn var viðureign Bandaríkjanna og Slóveníu. Bandaríkin unnu alla leiki sína í riðlinum en Slóvenía tapaði fyrir Búlgaríu í hörkuleik. Í dag byrjaði Slóvenía mun betur og vann fyrstu hrinu en eftir það gekk mun betur hjá bandaríska liðinu. Þeir náðu smám saman stjórn á leiknum og unnu að lokum sanngjarnan 3-1 sigur. Bandaríkin fara því áfram og mæta Búlgaríu í flottum leik.

Búlgaría 3-0 Portúgal (25-19, 25-23, 25-13). Alex Nikolov heldur áfram að raða inn stigum en hann skoraði 19 stig fyrir Búlgaríu. Lourenço Martins var stigahæstur hjá Portúgal með 10 stig.

Alex Nikolov er næststigahæsti leikmaður mótsins og hann átti enn einn frábæra leikinn gegn Portúgal (Mynd: FIVB)

Bandaríkin 3-1 Slóvenía (19-25, 25-22, 25-17, 25-20). Gabriel Garcia átti hörkuleik fyrir Bandaríkin og skoraði 25 stig, þar af 7 beint úr uppgjöf. Toncek Stern var stigahæstur hjá Slóveníu eins og oft áður en hann skoraði 18 stig í leiknum.

Búlgaría og Bandaríkin mætast í 8-liða úrslitum á fimmtudag. Sá leikur ætti að verða hörkuspennandi enda tvö af heitustu liðum mótsins til þessa að mætast. Á morgun halda 16-liða úrslitin hins vegar áfram og þar eru tvær ólíklegar viðureignir á dagskrá. Túnis mætir Tékklandi í fyrri leiknum og í hádeginu mætast svo Serbía og Íran.

Leikir morgundagsins – Þriðjudagur 23. september

Túnis – Tékkland 7:30

Serbía – Íran 12:00