Þróttur Reykjavík og Vestri mættust að öðru sinni þessa helgina í Unbrokendeild karla þegar liðin áttust við í Laugardalshöllinni í dag.
Í gær mættust liðin í hörkuleik þar sem Vestri hafði að lokum sigur 3-2 en annað var uppá teningnum í dag. Þróttarar réðu ríkjum allan leikinn og gestirnir voru aldrei líklegir. Leiknum lauk með auðveldum sigri Þróttar 3-0.
Þróttur Reykjavík – Vestri 3-0 (25-13, 25-15, 25-15)
Vestri situr hinsvegr enn á toppi deildarinnar með 7 stig eftir 4 leiki en Þróttur fer með sigrinum upp í 4. sæti með 5 stig eftir 3 leiki.