Í síðustu viku fóru fram átta liða úrslit í danska bikarnum, þar sem liðin kepptu um sæti í Final 4 sem fram fer 20.–21. desember. Úrslitin komu mörgum á óvart, þar sem nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós og önnur lið tryggðu sér sæti í undanúrslitum en að jafnaði hefur sést á Final 4 síðustu ár.
Middelfart VK, þar sem Hreinn Kári leikur, mætti Hvidovre VK í sínum leik í átta liða úrslitum og hafði Middelfart öruggan sigur, 3–0 (25–12, 26–16, 25–19).
Odense Volleybal þar sem þeir Máni Matthíasson og Galdur Máni leika, léku æsispennandi leik gegn Ikast KFUM. Odense vann fyrstu hrinuna 23–25, en Ikast svaraði og jafnaði með 25–23. Þriðja hrinan fór einnig til Ikast 25–23, en Odense komu sterkir inn í fjórðu hrinu og sigruðu hana 15–25. Oddahrinan var jöfn og spennandi, en Ikast náði forystu á lokakaflanum og tryggði sér sigur 15–11. Þar með eru þrefaldir bikarmeistarar Odense Volleyball úr leik, sem verður óvenjulegt sjónarspil á Final 4 helginni.
Holte IF, þar sem Sara Ósk leikur, mætti KSV í átta liða úrslitum og sigraði örugglega 3–0 (13–25, 7–25, 9–25).
Eftir leikina eru undanúrslit í danska bikarnum klár og skipast eftirfarandi:
Konur
• Holte IF – ASV Elite
• Ikast KFUM – Køge 2
Karlar
• Middelfart VK – Gentofte Volley
• Køge 2 – Ikast KFUM