Atli Fannar komin með alþjóðlega þjálfaragráðu – FIVB1

Atli Fannar Pétursson, yfirþjálfari  barna og unglingaráðs hjá Blakdeild Aftureldingar hefur undanfarna daga dvalið á Írlandi á þjálfaranámskeiði á vegum Alþjóða Blaksambandsins FIVB.

Eftir því sem Blakdeild Aftureldingar kemst næst þá er Atli Fannar fyrsti íslenski þjálfarinn til að taka þetta námskeið en nokkrir erlendir þjálfarar sem starfa hér á landi hafa lokið námskeiðinu.  Þar á meðal nýr þjálfari Aftureldingar, Tamas Kaposi.

Auk þess að ná sér í FIVB1 þjálfaragráðuna fékk Atli sérstök verðlaun þar sem hann hlaut hæðstu einkunn í bæði bóklega og verklega náminu á námskeiðinu en  allst tóku 29 þjálfarar þátt,  26 frá Írlandi og 6 annars staðar frá.

 

Frétt tekin af heimasíðu Blakdeildar Aftureldingar