Blaksamband Íslands heldur ársþing föstudaginn 27. mars 2026 þar sem fulltrúar aðildarfélaga koma saman á sínum árlega fundi. Nokkrar tillögur hafa borist þinginu en þar fara ávallt fram líflegar umræður um hin fjölbreyttustu málefni.
Líkt og á hverju ári fer fram ársþing BLÍ eins og annarra sérsambanda. Í þetta sinn er þingið haldið föstudag 27. mars að höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum. Alls bárust þinginu sjö tillögur frá stjórn og skrifstofu BLÍ sem verða teknar fyrir en einnig er tillaga lögð fyrir þingið varðandi lög BLÍ.
Blaksambandið hefur birt helstu gögn um þingið á heimasíðu sinni og má finna efnið með því að smella hér. Þingboð, dagskrá fundarins, og tillögurnar sem bárust þinginu má finna þar, ásamt efni frá fyrri þingum. BLÍ hefur einnig birt lista yfir þau framboð sem hafa borist til stjórnar og varastjórnar BLÍ en listann má sjá með því að smella hér.
Volleyball.is hvetur aðildarfélög eindregið til að manna þingið að fullu og taka virkan þátt í framþróun sambandsins og blakíþróttarinnar í heild sinni.