Argentína hafði betur gegn Frakklandi í úrslitaleik

Riðlakeppni HM karla lauk í dag með síðustu átta leikjunum. Gífurleg spenna var fyrir leikjum dagsins og sterk lið þurfa að sætta sig við að hafa lokið keppni á mótinu.

Ýmislegt gat breyst á síðasta keppnisdegi riðlanna þar sem að sjö af átta leikjum höfðu mikið gildi fyrir stöðu í hverjum riðli fyrir sig. Strax í fyrsta leik urðu óvænt úrslit þegar Serbar unnu 3-0 sigur gegn Brasilíu. Þar með opnaðist möguleiki fyrir Tékkland til að henda Brasilíu út úr keppninni en þeir mættu Kína í lokaleik H-riðils. Þeir tékknesku gripu gæsina og áttu fínasta leik gegn Kína. Tékkland vann leikinn 3-0 og munaði miklu að Patrik Indra átti stórleik. Hann skoraði 29 stig í hrinunum þremur, þar af 15 stig í fyrstu hrinu, og fer Tékkland því áfram í 16-liða úrslit ásamt Serbíu. Brasilía hefur því lokið keppni og verður þessi árangur án efa til umtals í Brasilíu og blakheiminum öllum.

Gífurleg fagnaðarlæti brutust út þegar Tékkland tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum (Mynd: FIVB)

Finnland mætti Suður-Kóreu og kom sér í góða stöðu með 3-1 sigri. Það var þó tölfræðilegur möguleiki á að bæði Argentína og Frakkland færu upp fyrir finnska liðið í stigatöflunni. Þau lið mættust innbyrðis í svakalegum leik. Argentína byrjaði betur og vann fyrstu tvær hrinurnar en Frakkland jafnaði leikinn með tveimur góðum hrinum. Færi svo að Frakkland myndi vinna oddahrinuna færu þeir í 16-liða úrslitin en Argentína vann að lokum 3-2 sigur og því fara Finnland og Argentína áfram. Frakkland situr eftir sem verður að teljast mjög óvænt.

Túnis hélt áfram góðu gengi sínu í A-riðli en liðið vann Egyptaland 3-0. Þar með tryggði Túnis sér efsta sæti A-riðils. Hinn leikur riðilsins var viðureign Filippseyja og Íran sem var úrslitaleikur um seinna sætið í útsláttarkeppninni. Eftir hádramatískan leik vann Íran oddahrinuna 20-22 og leikinn þar með 2-3. Því fer Íran áfram en Filippseyjar sitja eftir.

Það var glæsileg umgjörð á leik Filippseyja og Íran eins og öðrum leikjum mótsins (Mynd: FIVB)

Belgía vann auðveldan sigur gegn Alsír og tryggði sér efsta sætið í F-riðli. Allra augu voru hins vegar á viðureign Ítalíu og Úkraínu. Ríkjandi heimsmeistarar Ítalíu hafa ekki náð sér á strik og var leikurinn úrslitaleikur um að fylgja Belgíu á næsta stig keppninnar. Ítalir gerðu mun betur í dag en í fyrri leikjum sínum og unnu sannfærandi sigur á Úkraínu. Ítalía fer því áfram ásamt Belgíu og heldur enn í vonina um að verja heimsmeistaratitil sinn frá árinu 2022.

Brasilía 0-3 Serbía (22-25, 20-25, 22-25). Alan Souza skoraði 10 stig fyrir Brasilíu en Drazen Luburic skoraði 19 stig fyrir Serbíu.

Pavle Peric (12) átti flottan leik þegar Serbía vann Brasilíu (Mynd: FIVB)

Finnland 3-1 Suður-Kórea (25-18, 25-23, 17-25, 25-21). Luka Marttila skoraði 25 stig fyrir Finnland en Hojin Shin skoraði 24 stig fyrir Suður-Kóreu.

Egyptaland 0-3 Túnis (19-25, 18-25, 22-25). Seif Abed skoraði 12 stig fyrir Egyptaland en í liði Túnis voru Elyes Karamosli og Oussama Ben Romdhane atkvæðamestir með 14 stig hvor.

Belgía 3-0 Alsír (25-22, 25-20, 25-12). Ferre Reggers var atkvæðamikill eins og oft áður en hann skoraði 19 stig og er nú stigahæsti leikmaður mótsins með 73 stig í þremur leikjum. Tizit Farouk skoraði 11 stig fyrir Alsír.

Sam Deroo (3) er fyrirliði og helsti leiðtogi Belgíu sem hefur átt gott mót (Mynd: FIVB)

Filippseyjar 2-3 Íran (25-21, 21-25, 25-17, 23-25, 20-22). Bryan Bagunas skoraði 22 stig fyrir Filippseyjar og Leo Ordiales bætti við 21 stigi. Hjá Íran voru Poriya Khanzadeh og Ali Hajipour atkvæðamestir með 22 stig hvor.

Frakkland 2-3 Argentína (26-28, 23-25, 25-21, 25-20, 12-15). Trevor Clevenot skoraði 16 stig fyrir Frakkland en hjá Argentínu var Luciano Vicentin stigahæstur með 22 stig.

Tékkland 3-0 Kína (26-24, 25-19, 25-18). Patrik Indra átti stórkostlegan leik og skoraði 29 stig í leiknum. Bin Wang skoraði 12 stig fyrir Kína.

Ítalía 3-0 Úkraína (25-21, 25-22, 25-18). Alessandro Michieletto var atkvæðamestur hjá Ítalíu með 13 stig en Yurii Semeniuk skoraði 14 stig fyrir Úkraínu.

Þar með er riðlakeppninni lokið og ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum HM. Stórþjóðirnar Brasilía, Frakkland og Þýskaland eru úr leik en nú verður spennandi að sjá hvaða þjóðir halda áfram að koma á óvart. Í útsláttarkeppninni mætast Argentína og Ítalía í spennandi leik en einnig er vert að nefna viðureign Bandaríkjanna og Slóveníu. Belgía og Finnland mætast þar að auki en bæði lið komu á óvart og unnu sterka andstæðinga í riðlakeppninni.

16-liða úrslitin

Laugardagur 20. september: Tyrkland – Holland 7:30

Laugardagur 20. september: Pólland – Kanada 12:00

Sunnudagur 21. september: Argentína – Ítalía 7:30

Sunnudagur 21. september: Belgía – Finnland 12:00

Mánudagur 22. september: Búlgaría – Portúgal 7:30

Mánudagur 22. september: Bandaríkin – Slóvenía 12:00

Þriðjudagur 23. september: Túnis – Tékkland 7:30

Þriðjudagur 23. september: Serbía – Íran 12:00