Annar viðburðaríkur dagur í Unbroken deild karla

Líkt og í gær voru fjórir leikir á dagskrá í Unbroken deild karla í dag. Úrslit dagsins voru ekki ósvipuð því sem varð á laugardeginum.

Afturelding og Völsungur byrjuðu veislu dagsins í Mosfellsbænum en leik gærdagsins lauk með 3-1 sigri Aftureldingar. Heimamenn byrjuðu leikinn vel en Völsungur var ekki langt undan. Þegar leið á hrinuna fór bilið þó að breikka og Afturelding vann fyrstu hrinu sannfærandi. Ekki náðu gestirnir að finna taktinn í annarri hrinunni en þar leiddi Afturelding þægilega allt frá upphafi. Afturelding leiddi því 2-0 og hafði nokkra yfirburði.

Svipað var uppi á teningnum í þriðju hrinunni þar sem að Afturelding náði snemma góðum tökum á leiknum. Mosfellingar unnu leikinn því 3-0 og sóttu þrjú stig annan daginn í röð. Hafsteinn Már Sigurðsson skoraði 11 stig fyrir Aftureldingu en Juan Balinquer var stigahæstur í liði Völsungs með 10 stig.

Í Hveragerði léku Hamar og Þróttur Fjarðabyggð en Hamar hafði unnið laugardagsleikinn 3-0. Jafnræði var með liðunum í fyrstu hrinu en Hamar var mun betra liðið seinni hluta hennar og vann hana. Aftur byrjuðu Hamarsmenn vel í annarri hrinu en þá voru það gestirnir að austan sem gerðu vel eftir miðbik hrinunnar. Þróttur átti góðan kafla þar sem liðið skoraði 5 stig í röð og vann hrinuna naumlega.

Þróttarar byrjuðu frábærlega í þriðju hrinu en ekki dugði það lengi. Fljótlega leiddi Hamar með tveggja stafa tölu og vann auðveldan sigur til að taka 2-1 forystu. Sömu sögu var að segja um fjórðu hrinu þar sem að Hamar náði snemma góðu forskoti. Eftirleikurinn var nokkuð auðveldur og vann Hamar leikinn 3-1. Eins og Afturelding náði Hamar því í öll sex stigin þessa helgina.

Á Ísafirði mættust Vestri og HK en Vestri vann 3-1 sigur í gær. HK byrjaði leikinn mun betur og hafði 6 stiga forystu snemma í hrinunni. Frábær kafli heimamanna núllaði út forskotið og eftir miklar sveiflur vann Vestri fyrstu hrinu með góðum lokakafla. Önnur hrinan var keimlík þeirri fyrstu að mörgu leyti en aftur voru nokkrar sveiflur í spili liðanna. Vestri gerði einnig vel á lokakafla annarrar hrinunnar og náði í 2-0 forystu.

HK náði að hrista vel upp í leiknum með því að gjörsigra þriðju hrinuna og byrjaði einnig vel í þeirri fjórðu. Enn og aftur jafnaðist leikurinn út og Vestramenn reyndust sterkari undir lok hrinunnar. Vestri vann því 3-1 sigur, líkt og í gær.

Að lokum mættust Þróttur Reykjavík og KA í Laugardalnum en í þessu uppgjöri toppliðanna frá því í fyrra var mikil spenna. Þróttur vann 3-1 í gær og byrjaði einnig betur í dag. Gestirnir að norðan mættu varla til leiks í fyrstu hrinunni og Þróttur vann auðveldan sigur. Allt annað var að sjá liðin í annarri hrinu þar sem var mikið jafnræði með þeim. KA var skrefi á undan alla hrinuna og vann hana að lokum með minnsta mun.

Hnífjafnt var í þriðju hrinunni en norðanmenn voru beittari undir lokin og náðu þannig 1-2 forystu í leiknum. KA leiddi einnig í fjórðu hrinu þó jafnt væri á flestum tölum. Þá var komið að góðum lokakafla heimamanna sem tryggðu sér oddahrinu. Liðin skiptust á að hafa forystuna framan af oddahrinunni en KA reyndust sterkari og unnu 13-15 sigur í henni. KA vann leikinn því 2-3 og heldur í 2. sæti deildarinnar.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 9. nóvember

Afturelding 3-0 Völsungur (25-20, 25-16, 25-17)

Hamar 3-1 Þróttur Fjarðabyggð (25-21, 24-25, 25-14, 25-19)

Vestri 3-1 HK (25-22, 25-20, 12-25, 25-22)

Þróttur Reykjavík 2-3 KA (25-17, 23-25, 22-25, 28-26, 13-15)

Eftir þessa fjölmörgu leiki helgarinnar hefur stöðutaflan tekið nokkrum breytingum. Mætti segja að deildin sé tvískipt en þó þarf lítið til að breytingar verði á því. Hér má sjá stöðuna þegar flest lið hafa leikið 8 leiki eða svo.

Stöðutafla Unbroken deildar karla – 9. nóvember 2025

Nú tekur við stutt hlé á Unbroken deild karla en næsti leikur fer fram þann 19. nóvember þegar Hamar og Þróttur Reykjavík mætast í toppslag. Í kjölfarið fara nokkrir leikir fram helgina 22.-23. nóvember.