Leikið var í Unbroken deild karla í dag en Afturelding tók á móti Vestra að Varmá og Völsungur sótti Þrótt Reykjavík heim í Laugardalshöllina.
Afturelding hefur verið á miklu skriði síðustu vikur og mætti baráttuglöðum Ísfirðungum í dag. Jafnt var á öllum tölum í fyrstu hrinu og var það Vestri sem vann hana eftir upphækkun. Lið Vestra tók þetta með sér inn í aðra hrinu og voru með öll tök á leiknum. Þeir leiddu 0-2 eftir þægilegan sigur í annarri hrinunni og Afturelding með bakið upp við vegginn fræga. Afturelding hafði forystuna alla þriðju hrinu en náði ekki að slíta sig almennilega frá gestunum. Þeir gerðu hins vegar vel á spennandi lokakafla og staðan orðin 1-2.
Fjórða hrinan varð aldrei spennandi en nú voru það Mosfellingar sem stungu af snemma. Þeir höfðu 10 stiga forystu strax um miðja hrinu og tryggðu sér oddahrinu með afar sannfærandi sigri. Það voru Ísfirðingar sem byrjuðu betur í oddahrinunni en forysta þeirra dugði skammt. Eftir að Vestri hafði náð 9-10 forystu sneri Afturelding leiknum sér í vil, átti 6-2 kafla undir lokin og vann oddahrinuna 15-12. Afturelding sótti þar með sigur eftir að hafa lent 0-2 undir.

Í Laugardalnum fengu Þróttarar lið Völsungs í heimsókn. Þróttur er í baráttu um toppsætin í Unbroken deildinni á meðan að Völsungur er í næstneðsta sætinu. Þróttur var sterkari aðilinn í fyrstu hrinu en náði ekki að byggja upp öruggt forskot fyrr en undir lok hrinunnar. Allt aðra sögu var að segja um aðra hrinu leiksins þar sem að Þróttur leiddi 6-0 í upphafi hrinu og fór með öruggan sigur. Þar með leiddu Þróttarar 2-0 og virtust ætla að sækja auðveldan sigur.
Annað kom á daginn en Völsungur gerði mun betur í þriðju hrinunni. Eftir erfiða byrjun jafnaðist leikurinn út og sveiflaðist forystan á milli liðanna fram undir lokin. Þar voru gestirnir öflugri og minnkuðu muninn í 2-1. Svipað var uppi á teningnum í fjórðu hrinu þar sem jafnræði var með liðunum eftir upphafsstigin. Í þetta skiptið kláraði Þróttur dæmið með góðum lokakafla og unnu leikinn 3-1. Afar mikilvæg 3 stig í toppbaráttunni en Völsungur fær ekkert út úr annars ágætum leik.
Með sigrinum í dag heldur Afturelding í vonina um að jafna Hamar á toppi deildarinnar. Það gera þeir með 3-0 eða 3-1 sigri þegar Afturelding og Vestri mætast öðru sinni á morgun. Vestri er um miðja deild í hálfgerðu einskismannslandi. Þróttur Reykjavík er stigi á undan Aftureldingu eftir úrslit dagsins og Völsungur er enn í harðri baráttu rétt ofan við botnlið deildarinnar, HK.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Laugardagur 6. desember
Afturelding 3-2 Vestri (26-28, 19-25, 25-21, 25-14, 15-12). José Federico Ferrón var stigahæstur hjá Aftureldingu með 14 stig en Adria De Los Santos skoraði 19 stig fyrir Vestra.
Þróttur Reykjavík 3-1 Völsungur (25-19, 25-17, 22-25, 25-23)
Á morgun, sunnudag, fara seinni leikir helgarinnar fram þar sem sömu lið mætast öðru sinni. Líkt og í dag hefjast leikirnir um miðjan daginn, beint í kjölfar leikja í Unbroken deild kvenna.