Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla en leikið var í Mosfellsbæ og Hveragerði.
Afturelding mætti Þrótti Reykjavík í spennandi leik þar sem að bæði lið léku sína fyrstu deildarleiki á tímabilinu. Þróttur hafði að vísu leikið í meistarakeppni BLÍ en tapaði þar naumlega gegn KA. Þessi tvö lið sjá fyrir sér að verða í baráttu um alla titlana á þessu tímabili og úr varð jafn og spennandi leikur. Eftir tvær jafnar hrinur var staðan 1-1 en þá vann Afturelding mjög sannfærandi 25-14 sigur í þriðju hrinu. Þróttarar komu til baka og unnu nauman sigur í fjórðu hrinu en Afturelding kláraði leikinn í oddahrinu.
Í Hveragerði mætti Hamar gestaliði HK. Hamar er einnig eitt þeirra liða sem ætlar sér á topp deildarinnar enda unnið ófáa titla undanfarin tímabil. Hvergerðingar reyndust mun sterkari í kvöld og unnu öruggan 3-0 sigur. Hamar er því á toppi deildarinnar ásamt Völsungi þegar lið deildarinnar eru búin að spila 1-3 leiki hvert.
Afturelding 3-2 Þróttur R (25-22, 22-25, 25-14, 24-26, 15-9)
Hamar 3-0 HK (25-16, 25-16, 25-17)
Unbroken deild karla heldur áfram um helgina þegar Þróttur Reykjavík og Vestri mætast tvívegis, laugardag og sunnudag. Kvennadeildin fer hægt af stað en næsti leikur þeim megin fer fram miðvikudaginn 1. október.