Afturelding vann nauman sigur á heimavelli

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Afturelding tók á móti Þrótti Reykjavík/BFH í Unbroken deild kvenna í kvöld. Liðin eru í 4. og 5. sæti deildarinnar og eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.

Þróttur R/BFH sat í 4. sætinu fyrir leik kvöldsins en þrátt fyrir það hafði Afturelding unnið báðar viðureignir liðanna á tímabilinu. Afturelding gat jafnað Þróttara að stigum með sigri en lið deildarinnar eiga aðeins 5-6 leiki eftir í deildarkeppninni.

Gestirnir úr Laugardalnum byrjuðu betur í kvöld og náðu fljótt yfirhöndinni í fyrstu hrinu. Afturelding var nálægt því að snúa hrinunni sér í vil en Þróttur vann 21-25 og leiddi 0-1. Þróttarar virtust svo ætla að fara létt með Aftureldingu í annarri hrinunni en í stöðunni 11-19 fór allt í baklás hjá gestunum. Afturelding skoraði 9 stig í röð og endaði á að vinna 26-24 sigur. Mosfellingar náðu hins vegar ekki að taka þetta með sér inn í næstu hrinu en hana vann Þróttur auðveldlega, 16-25.

Enn hélt leikurinn áfram að vera nokkuð sveiflukenndur og nú var komið að Aftureldingu að vinna þægilegan 25-17 sigur og knúa fram oddahrinu. Afturelding byrjaði betur en Þróttur minnkaði muninn í 8-7 áður en heimakonur sögðu hingað og ekki lengra. Afturelding skoraði næstu 7 stig og tryggði 15-7 sigur. Afturelding vann þar með 3-2 og nálgast Þrótt lítillega í stigatöflunni.

Þróttur R/BFH heldur 4. sætinu þrátt fyrir tapið í kvöld en nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum. Afturelding er með 16 stig gegn 18 stigum Þróttara en Völsungur kemur þar á undan með 21 stig og leik til góða á Þrótt og Aftureldingu.

Næstu leikir fara fram um helgina en KA kemur á höfuðborgarsvæðið og mætir bæði Þrótti R/BFH og Aftureldingu. KA og Þróttur R/BFH mætast á föstudag en Afturelding tekur á móti KA á laugardag.