Afturelding styrkir stöðu sína í 4.sæti Unbroken deildar kvenna

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í gær þegar Þróttur Reykjavík/BFH tók á móti Aftureldingu í Laugardalshöll.

Fyrir leikinn var búist við hörkuviðureign enda bæði lið að berjast um 4.sæti deildarinnar og þar með síðasta plássið í úrslitakeppninni. Aðeins einu stigi munaði á liðunum fyrir leikinn en Aftureldingar sat í 4.sæti með 19 stig og Þróttur / BFH í 5.sæti með 18 stig.

Afturelding fór vel af stað í leiknum og var með fyrstu hrinu leiksins að mestu leyti í sínum höndum frá byrjun. Bæði lið sýndu þó frábæra takta bæði í sókn og vörn. Afturelding sigraði fyrstu hrinuna 25-18. Hrinu tvö tók Þróttur / BFH með minnsta mun 25-23 og stefndi í hörkuleik. Eitthvað dróg þó af heimastúlkum í þriðju og fjórðu hrinu og náðu þær ekki að halda sama dampi og þær gerði í annarri hrinu, Afturelding hafði betur 25-18 og 25-20 og sigra því leikinn 3-1.

Þar með er Afturelding komið með 4 stiga forskot á Þrótt / BFH en bæði lið eiga tvo leiki eftir í deildarkeppninni.

Afturelding heimsækir þá Þrótt Fjarðarbyggð um helgina á meðan Þróttur / BFH heimsækir Völsung. Aftureldingu nægir einn sigur til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.