Afturelding og KA færast nær úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Í kvöld hófust undanúrslit Unbrokendeildar kvenna en þar mættust HK og Afturelding í Digranesi og svo KA og Völsungur á Akureyri.

Fyrri leikur kvöldsins var viðureign HK og Aftureldingar en sá leikur endaði í 5 hrinu háspennuleik. Afturelding byrjaði leikinn af miklum krafti en eftir nokkuð jafna byrjun þá náði Afturelding tökum á leiknum og unnu þær fyrstu hrinu 25-19. HK snéri svo taflinu við í annarri hrinu og voru þær yfir allt frá byrjun og unnu hana nokkuð örugglega 25-17.

Eftir að hafa verið 8 stigum undir 8-16 í þriðju hrinu þá gáfu Afturelding allt í botn en eftir mikla baráttu náðu þær ótrúlegum endurkomu sigri 26-24. HK jafnaði svo leikinn með sigri í fjórðu hrinu 25-19 og ljóst að grípa þurfti til oddahrinu. Oddahrinuna unnu Afturelding 15-12 og eru þær því komnar með yfirhöndina í einvígi liðanna um sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Leikur liðanna tók 2 klst og 19 mínútur en mikið var um langar skorpur enda varnarleikur liðanna frábær. Leikur kvöldsins gefur góð fyrirheit um það sem koma skal þegar liðin mætast að öðru sinni mánudaginn 6.apríl í Mosfellsbæ

HK – Afturelding 2-3 (19-25, 25-17, 24-26, 25-19, 12-15)

Seinni leikur kvöldsins var svo viðureign KA og Völsungs en leikið var í KA heimilinu á Akureyri. KA fór vel af stað í leiknum og sigruðu þær fyrsti tvær hrinur leiksins 25-16 0g 25-20. Völsungur var svo með töluverða yfirburði í þriðju hrinu sem endaði með sigri Völsungs 25-16.

KA gerði svo út um leikinn í fjórðu hrinu en yfirburði KA voru miklir, KA fór með sigur 25-13 og eru því komnar í góða stöðu fyrir seinni leik liðanna sem fer fram mánudaginn 6.apríl á Húsavík.

KA – Völsungur 3-1 (25-16, 25-20, 16-25, 25-13)