Afturelding með öruggan sigur á Ými í Kjörísbikar kvenna

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Einn leikur fór fram í Kjörísbikar kvenna í kvöld þegar Afturelding tók á móti 1.deildar liði Ýmis í Mosfellsbæ.

Það varð ljóst strax frá upphafi að Afturelding yrði ekki í miklum vandræðum. Liðið tók fyrstu hrinuna með afgerandi hætti, 25-13. Aðra hrinuna tóku þær með enn afgerandi hætti 25-6. Þriðja hrinan var jafnari en þær fyrri, Afturelding hvíldi sinn stigahæsta leikmann megnið af hrinunni en Afturelding fór með sigur 25-19 og 3-0 sigur því í höfn.

Afturelding hefur því tryggt sér sæti í úrslitahelginni sem fer fram í Digranesi.

Stigahæsti leikmaður leiksins var Sóldís Björt Leifsdóttir með 12 stig.