Afturelding með átta sigra í röð

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Það var hart barist í Unbroken deild karla þessa helgina en tveir leikir fóru fram í dag. Liðin höfðu einnig leikið í gær og voru Vestri og Völsungur í hefndarhug.

Afturelding fór vel af stað gegn Vestra og jókst munurinn á liðunum eftir því sem leið á fyrstu hrinu. Heimamenn höfðu góð tök á leiknum og unnu auðveldlega. Mosfellingar voru einnig mun betra liðið í annarri hrinu þar sem liðið leiddi 8-1. Vestri náði að minnka muninn í eitt stig undir lokin en Afturelding kláraði dæmið og náði 2-0 forystu.

Gestirnir virtust sigraðir og ekki batnaði staðan í þriðju hrinu. Þar var Afturelding 12 stigum yfir og vann hrinuna án nokkurrar mótspyrnu. Þar með náði Afturelding í 3-0 sigur og jafnaði Hamar að stigum við topp deildarinnar. Vestri er enn um miðja deild, 8 stigum á undan Þrótti Fjarðabyggð en sömuleiðis 9 stigum á eftir KA.

Seinni leikurinn fór fram í Laugardalshöll og voru það heimamenn í Þrótti Reykjavík sem byrjuðu mun betur en gestirnir frá Húsavík. Eftir að jafnræði hafði verið með liðunum fram undir miðja fyrstu hrinu stungu Þróttarar af og unnu auðveldlega. Völsungur gerði mun betur í upphafi annarrar hrinu en náðu ekki að halda út hrinuna. Aftur vann Þróttur en mótspyrnan var þó mun meiri frá gestunum.

Húsvíkingar virtust loks vaknaðir og léku frábærlega í upphafi þriðju hrinu. Þeir höfðu 1-9 forystu en misstu hana fljótt niður. Heimamenn jöfnuðu 13-13 og úr varð nokkuð spennandi hrina. Þróttur Reykjavík lék betur á lokakaflanum og nældi í nauman sigur eftir upphækkun. Þróttur vann leikinn þar með 3-0 og fékk öll sex stigin þessa helgina. Með því sest liðið í efsta sætið um sinn en Þróttarar hafa þó leikið einum leik fleiri en liðin í kringum þá.

Áhugavert er að skoða gengi liðanna undanfarnar vikur. Völsungur vann tvo fyrstu deildarleiki sína en hefur síðan tapað 10 leikjum í röð. Á hinn bóginn hefur Afturelding unnið 8 sigra í röð eftir tvö töp í fyrstu þremur leikjum sínum. Einn þessara sigra var gegn Hamri sem hafði þá unnið 9 sigra í röð. Lengi mætti telja í þessum efnum.

Hægt er að sjá úrslit og stöðutöflu deildarinnar með því að smella hér.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 7. desember

Afturelding 3-0 Vestri (25-18, 25-21, 25-16)

Þróttur Reykjavík – Völsungur (25-15, 25-21, 27-25)

Nú styttist óðum í að Unbroken deildirnar fari í jólafrí en þó fara fjórir leikir til viðbótar fram í karladeildinni þetta árið.

Hér má sjá síðustu leiki ársins 2025 í Unbroken deild karla