Afturelding og Þróttur Reykjavík mættust í toppslag Unbrokendeildar karla í kvöld en liðin eru í 2. og 3.sæti Unbrokendeildar karla.
Mikil spenna var fyrir leiknum í kvöld en ljóst var að bæði lið ætluðu sér sigur til að eiga möguleika á að halda í við Hamar sem situr á toppi deildarinnar. Þessi sömu lið mættust í 8 liða úrslitum Kjörísbikar karla fyrir stuttu en þar hafði Afturelding betur 3-1.
Fyrsta hrina leiksins var öll í járnum og sýndu bæði lið góða tilburði bæði varnar og sóknarlega. Eftir æsispennandi hrinu hafði Afturelding loks betur 25-23. Allt leit svo út fyrir að Afturelding myndi taka öll völd í annarri hrinu en Afturelding komst í 7-1. Lítið sem ekkert gekk upp hjá Þrótti Reykjavík og virtist allt púður úr þeim eftir fyrstu hrinuna. Afturelding hélt góðu forskoti fram undir miðja hrinu en góð endurkoma Þróttar dugði ekki og fór Afturelding aftur með sigur 25-23.
Þróttur komu sterkari til leiks í þriðju hrinu og komu sér aftur inní leikinn með sigri 25-22. Afturelding hélt hinsvegar haus og voru sterkari aðilinn í fjórðu hrinu sem lauk með sigri Aftureldingar 25-18 og endurtók Afturelding því leikinn frá því þegar liðin mættust í Kjörísbikarnum.
Afturelding – Þróttur Reykjavík 3-1 (25-23, 25-23, 22-25, 25-18)
Afturelding tyllir sér í 2.sætið með 40 stig eftir 17 leiki, 4 stigum á eftir Hamri sem eru í 1.sæti með 44 stig eftir 18 leiki.
