Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld þegar Hamar tók á móti Aftureldingu í Hveragerði.
Hamar sat fyrir leik kvöldsins á toppi Unbroken deildar karla með 26 stig eftir 10 leiki, stigi meira en KA sem var búið að leika 11 leiki. Afturelding var hinsvegar í 4. sæti með 15 stig eftir aðeins 7 leiki.
Fyrsta hrina var hörkuspennandi og ljóst að bæði lið kæmu af krafti inní leikinn. Liðin skiptu með sér stigum í fyrstu hrinu en að lokum voru það gestirnir frá Mosfellsbæ sem höfðu betur 25-20.
Það var ekki jafn jafnt á tölum í annarri hrinu en mikil spenna engu að síður, spennan var þó aðalega á milli leikmanna beggja liða en 3 spjöld fóru á loft í hrinunni, gult á sitthvort lið fyrir óæskilegt látbragði í átt að andstæðini og svo hlaut Tamas Kaposi spilandi þjálfari Aftureldingar rautt spjald fyrir orðaskipti við dómara leiksins. 3 spjöld á 7 stiga kafla og ljóst að rígur þessara liða heldur áfram. Heimamenn fóru að lokum með öruggan sigur í hrinunni 25-16 og jafna því leikinn 1-1.
Afturelding náði hinsvegar góðum tökum á leiknum aftur í þriðju hrinu og var staðan 7-3 fyrir Aftureldingu þegar Hamar tekur leikhlé. Heimamenn ná aðeins að rétta úr kútnum en það dugði ekki til og sigraði Afturelding þriðju hrinu 25-19. Afturelding klárði svo leikinn með sigri í fjórðu hrinu 25-18 og 3-1 sigur Aftureldingar því niðurstaðan.
Öflugur sigur hjá Aftureldingu en þær færast nær toppliðunum eftir sigur kvöldins. Hamar situr þó enn á toppi deildarinnar með 26 stig.