Afturelding hafði betur eftir æsispennandi oddahrinu

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld en þar mættust Afturelding og Hamar í hörkuleik. Leikið var að Varmá í Mosfellsbæ.

Liðin tvö eru í mikilli baráttu á toppi deildarinnar og áttu bæði lið möguleika á að setjast í toppsætið með hagstæðum úrslitum. Það var Afturelding sem byrjaði leik kvöldsins betur en þeir gáfu þó eftir þegar leið á fyrstu hrinuna. Hamar sigldi fram úr og tryggði sigur í hrinunni með góðum lokakafla. Í annarri hrinunni var jafnt framan af hrinu en þá skoruðu Hvergerðingar 6 stig í röð og virtust ætla að ná 0-2 forystu í leiknum. Allt kom fyrir ekki og nú var það Afturelding sem gerði vel undir lokin. Heimamenn skoruðu síðustu 4 stig hrinunnar og unnu hana með minnsta mun.

Miklar sveiflur voru í þriðju hrinu þar sem Afturelding leiddi stærstan hluta hrinunnar þægilega. Hamar náði að klóra í bakkann en komust ekki inn í leikinn, Afturelding tók 2-1 forystu og var á góðri siglingu. Enn héldu sveiflurnar áfram í fjórðu hrinu, hnífjafnt var framan af en Hamar var eina liðið á vellinum seinni hluta hrinunnar. Þeir unnu fjórðu hrinu auðveldlega og fór leikurinn því í oddahrinu.

Í úrslitahrinunni byrjuðu gestirnir frá Hveragerði betur en þeir leiddu 5-8 þegar skipt var um leikvöll. Þeir virtust svo ætla að sigla sigrinum heim en lentu í miklum vandræðum eftir að hafa leitt 11-13 undir blálokin. Afturelding skoraði síðustu fjögur stigin og mætti segja að þeir hafi stolið sigrinum miðað við lokakaflann.

Eftir þessi úrslit er Hamar þó á toppi deildarinnar. Þeir sitja í efsta sætinu, einu stigi á undan þremur næstu liðum sem eru KA, Afturelding og Þróttur Reykjavík. Alls fara fjórir leikir fram í Unbroken deild karla um helgina en þar að auki tveir leikir í Unbroken deild kvenna.

Staðan í Unbroken deild karla þann 14. janúar 2026.

Úrslit dagsins – Miðvikudagur 14. janúar 2026

Afturelding 3-2 Hamar (21-25, 25-23, 25-19, 17-25, 15-13).