Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla í kvöld en leikið var í Kópavogi og Neskaupstað.
HK tók á móti Aftureldingu í Digranesi en liðin eru í ólíkri stöðu í deildinni. HK vann nýlega sinn fyrsta leik í Unbroken deildinni þetta tímabilið á meðan að Afturelding hefur unnið fimm leiki í röð og nálgast topp deildarinnar óðfluga. Fyrsta hrina leiksins var ójöfn þar sem að Afturelding var eina liðið á vellinum. Önnur hrina var hins vegar spennandi þar sem að liðin skiptust á að hafa forystuna. Aftureldingarliðið reyndist sterkara á lokakafla hrinunnar og náði 0-2 forystu.
Afturelding byrjaði þriðju hrinu leiksins vel en HK neitaði að gefast upp. Heimamenn sneru dæminu við í seinni hluta hrinunnar og unnu hana. Þar með var staðan 1-2 Aftureldingu í vil og héldu HK-ingar áfram að gera vel í fjórðu hrinu. Eftir miðbik hrinunnar náðu gestirnir þó smám saman tökum á leiknum og unnu hana að lokum, sem tryggði 1-3 sigur Aftureldingar.
Á austurlandi mættust Þróttur Fjarðabyggð og Völsungur en aðeins munaði tveimur stigum á liðunum fyrir leik kvöldsins. Heimamenn byrjuðu leikinn afar vel og leiddu alla fyrstu hrinuna. Eftir jafna aðra hrinu gerði Völsungur vel undir lokin og jafnaði leikinn 1-1, Þróttur leiddi framan af hrinunni en náði ekki að klára hana af krafti. Enn leiddu Þróttarar framan af þriðju hrinunni en í þetta skiptið héldu þeir út, þrátt fyrir fína endurkomu hjá gestunum.
Þróttur Fjarðabyggð leiddi því 2-1 eftir fyrstu þrjár hrinurnar og úr varð skemmtileg og spennandi fjórða hrina. Gestirnir frá Húsvaík misstu Þróttara hins vegar frá sér um miðja hrinuna og sigldu heimamenn 3-1 sigri heim.
Mosfellingar sitja nú í 3. sæti deildarinnar og eiga tvo leiki til góða á topplið Hamars og KA. Með tveimur sigrum um helgina kemst liðið í efsta sæti deildarinnar. Með sigri sínum í kvöld fer Þróttur Fjarðabyggð upp fyrir Völsung og situr í 6. sætinu með 8 stig. Völsungur er í því sjöunda með 7 stig en HK er enn með 3 stig á botni deildarinnar.
Stöðutöflu Unbroken deildar karla í heild sinni má finna með því að smella hér.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Miðvikudagur 3. desember
HK 1-3 Afturelding (12-25, 21-25, 25-22, 21-25)
Þróttur Fjarðabyggð 3-1 Völsungur (25-19, 21-25, 25-22, 25-19)
Næsta helgi verður viðburðarík í Unbroken deildunum en þar fara fram fjórir leikir karlamegin auk fjögurra til viðbótar í kvennadeildinni. Þróttur Reykjavík mætir Völsungi tvívegis í bæði karla- og kvennaflokki en leikjaplan Unbroken deildanna má nálgast hér að neðan.