Afturelding áfram í undanúrslit í Kjörísbikar karla

Tveir leikir voru á dagskrá í Kjörísbikar karla í dag, fyrri viðureignin var leikur Þróttar Reykjavíkur og Aftureldingar en sá leikur fór fram í Laugardalshöll.

Mikil spenna var fyrir leiknum og var vel mætt í Laugardalshöllina. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og virtust ætla að setja tóninn strax í upphafi en Þróttur leiddi lengi vel með 4-5 stiga mun. Afturelding gerði hvað þeir gátu til að halda í við heimamenn en fór svo að Þróttur vann fyrstu hrinuna 25-20.

Blaðið snérist við í annarri hrinu en þar virtust Afturelding ætla að hafa öll völd á leiknum. Eftir mikla spennu náðu Þróttur hinsvegar að jafna 22-22 en lengra komust þeir ekki og Afturelding jafnaði leikinn með sigri 25-22.

Spennan hélt áfram í þriðju hrinu en þó voru heimamenn með yfirhöndina. Gestirnir gáfust hinsvegar ekki upp og góðar sóknir frá nýjasta leikmanni Aftureldingar, Tomek Leik gerðu gæfumun og náðu Afturelding að koma til baka og vinna hrinuna 25-20.

Allt púður virtist úr heimamönnum í fjórðu hrinu og gengu Afturelding á lagið og unnu hana nokkuð örugglega 25-16 og leikinn þar með 3-1.

Afturelding hefur því tryggt sig áfram í bikarhelgina sem fer fram í Digranesi.