Ævarr Freyr Birgisson hefur gengið til liðs við Færeyska liðið Mjölni eftir 7 ára dvöl hjá Odense Volleyball í Danmörku.
Ævarr gekk til liðs við danska liðið Odense Volleyball tímabilið 2018/2019 og hefur á þessum 7 árum spilið hátt í 200 leiki í dönsku deildinni. Ævarr varð 3 sinnum danskur meistari og 3 sinnum danskur bikarmeistari á tíma sínum hjá danska liðinu.
Mjölnir eru bæði Færeyskir meistarar sem og bikarmeistarar en liðið hefur einnig tekið þátt í Challenge Cup undanfarin ár og hefur keppni í ár gegn hollenska liðinu Sliedrecht Sport þann 12.nóvember. Ævarr kemur án efa til með að vera mikill liðsstyrkur fyrir færeyska liðið og verður gaman að sjá hvernir honum á eftir að ganga í nýju liði.