Æsispenna í baráttunni um 3. sætið

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild kvenna í dag en Þróttur R/BFH mætti Völsungi í hörkuslag um 3. sæti deildarinnar. Þá mættust Afturelding og Þróttur Fjarðabyggð í Mosfellsbæ.

Kvennadeildin hefur þróast á þann hátt að HK og KA berjast um toppsætið og töluvert langt er í næstu lið. Baráttan um 3. sætið er hins vegar afar hörð og þar eru Völsungur, Þróttur R/BFH og Afturelding í þéttum pakka. Fyrir helgina var Völsungur í 3. sæti með 14 stig, Þróttur R/BFH í 4. sæti með 11 stig og Afturelding í 5. sæti með 8 stig. Þar sem að öll liðin spila tvo leiki þessa helgi er viðbúið að staðan verði önnur eftir leiki sunnudagsins.

Þróttur R/BFH og Völsungur byrjuðu daginn í Laugardalshöll þar sem að gestirnir tóku 0-1 forystu eftir jafna fyrstu hrinu. Þróttur R/BFH var mun sterkari aðilinn í þeirri næstu og vann liðið auðveldan 25-15 sigur til að jafna 1-1. Enn héldu heimakonur áfram að gera vel en eftir hnífjafna þriðju hrinu reyndust Þróttarar sterkari á lokakaflanum. Þær unnu nauman sigur og höfðu þar með snúið dæminu sér í vil.

Fjórða hrinan var keimlík þeirri þriðju en í þetta skiptið var Völsungur skrefi á undan allan tímann. Húsvíkingar náðu að knýja fram oddahrinu en eftir góða byrjun í henni tóku heimakonur aftur við sér. Þróttur R/BFH vann að lokum og kom þar með í veg fyrir að Völsungur myndi auka forskot sitt í 3. sæti deildarinnar.

Þróttur R/BFH fagnaði sigri í dag gegn sterku liði Völsungs (Mynd: Sigga Þrúða)

Afturelding tók á móti botnliði Þróttar F sem hafði náð í eitt stig í deildinni. Afturelding leiddi í upphafi leiks en Þróttarar tóku öll völd um miðja fyrstu hrinu. Þróttur leiddi 10-19 þegar allt fór í baklás hjá liðinu. Heimakonur söxuðu hratt á forskotið en Þróttur leiddi þó 20-24. Afturelding skoraði sex síðustu stig hrinunnar og stal því sigrinum sem braut gestina ef svo mætti segja.

Næstu tvær hrinur vann Afturelding auðveldlega og þá sérstaklega aðra hrinuna. Afturelding náði því í mikilvægan 3-0 sigur í baráttunni við Þrótt R/BFH og Völsung.

Eftir leiki dagsins er röðin á liðunum sú sama en pakkinn þéttist nokkuð. Fróðlegt verður að sjá hvernig úrslit morgundagsins verða og hvort baráttann verði enn harðari nú þegar líður að jólafríi.

Staðan í Unbroken deild kvenna – 6. desember 2025

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Laugardagur 6. desember

Þróttur R/BFH 3-2 Völsungur (21-25, 25-15, 25-21, 22-25, 15-10)

Afturelding 3-0 Þróttur Fjarðabyggð (26-24, 25-13, 25-18). Tamara Kaposi-Peto skoraði 13 stig fyrir Aftureldingu en Hrefna Ágústa Marinósdóttir skoraði 12 stig fyrir Þrótt F.

Á morgun fara einnig tveir leikir fram og mætast sömu lið og í dag en báðir leikir hefjast kl. 13:00. HK og KA eiga ekki leiki þessa helgina en mætast hins vegar innbyrðis dagana 13. og 14. desember.