Þrír leikir fóru fram í Unbroken deild karla í dag. Þrjú lið gátu tyllt sér á topp deildarinnar með hagstæðum úrslitum.
Fyrsti leikur dagsins fór fram í Laugardalshöll þar sem Þróttur Reykjavík tók á móti Þrótti Fjarðabyggð. Gestirnir að austan mættu HK í gærkvöldi í löngum og jöfnum leik. Þeir byrjuðu þó vel og var fyrsta hrina leiksins jöfn og spennandi. Gestirnir höfðu yfirhöndina um miðja hrinu en Þróttur R átti mun betri lokakafla. Heimamenn tóku því 1-0 forystu en náðu ekki að nýta það í upphafi annarrar hrinu.
Aftur byrjuðu gestirnir frá Neskaupstað betur en í þetta skiptið fjaraði hratt undan hjá þeim. Heimamenn fóru á mikið flug um miðja hrinu og tóku öll völd á vellinum. Þróttur R vann auðveldlega og náði afgerandi 2-0 forystu. Þróttur R hélt svo uppteknum hætti í þriðju hrinu þar sem þeir byggðu smám saman upp örugga forystu. Að lokum unnu þeir 3-0 sigur og náðu í 3 mikilvæg stig í toppbaráttunni.
Í Hveragerði tók Hamar á móti Völsungi þar sem Hamar byrjaði afar vel. Þeir virtust ætla að fara létt með fyrstu hrinu en Völsungur tók við sér um miðja hrinu. Gegn gangi leiksins fyrstu mínúturnar leiddu Völsungar óvænt 21-24 undir lok hrinunnar en Hamar stal sigrinum með því að skora 5 síðustu stigin. Þetta virtist fara illa í gestina en Hvergerðingar byggðu upp þægilegt forskot þegar leið á aðra hrinu. Hana unnu þeir sannfærandi og leiddu 2-0.
Meira jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu en Hamar seig fram úr undir lokin og leiddi 22-17 þegar Völsungur komst á mikið skrið. Líkt og í fyrstu hrinu áttu gestirnir möguleika á að vinna hrinuna en allt kom fyrir ekki. Hamar náði í 30-28 sigur og vann leikinn þar með 3-0.
Síðasti leikur dagsins var viðureign Vestra og KA á Ísafirði. Gestirnir frá Akureyri byrjuðu frábærlega og náðu 0-6 forystu sem setti tóninn fyrir fyrstu hrinuna. KA vann hana örugglega þrátt fyrir ágætis kafla heimamanna. Aftur byrjaði KA betur í annarri hrinu og líkt og í fyrstu hrinunni héldu þeir því nokkurn veginn alla hrinuna. KA leiddu 2-0 og virtust með góð tök á leiknum. Norðanmenn leiddu 14-21 þegar langt var liðið á þriðju hrinu en þá vöknuðu heimamenn svo sannarlega til lífsins. Þeir áttu ótrúlegan lokakafla og unnu 30-28 sigur.
Vestri komst á betra skrið eftir þessa endurkomu og í fjórðu hrinu leiddu þeir örugglega eftir miðbik hrinunnar. Leikurinn fór alla leið í oddahrinu en þar leiddi KA allt frá upphafi. KA vann hrinuna nokkuð sannfærandi og leiknum lauk því 2-3 fyrir KA.
Eftir leiki dagsins er Hamar í toppsætinu en Þróttur Reykjavík, KA og Afturelding skammt á eftir. Vestri er um miðja deild en Þróttur Fjarðabyggð og Völsungur eru í harðri baráttu um 6. sæti deildarinnar. Heildarstöðuna má sjá með því að smella hér.
Einn leikur fer fram á miðvikudag í Unbroken deild karla en þá mætast Afturelding og HK í Mosfellsbæ.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Laugardagur 17. janúar
Þróttur Reykjavík 3-0 Þróttur Fjarðabyggð (25-22, 25-15, 25-21)
Hamar 3-0 Völsungur (26-24, 25-17, 30-28)
Vestri 2-3 KA (20-25, 21-25, 30-28, 25-18, 9-15)