Óvænt úrslit á heimsmeistaramóti kvenna í dag

Leikmenn Frakklands fagna fræknum sigri á Kína (Mynd: Volleyball World)

Tveir leikir fóru fram í 16 liða úrslitum á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi í dag.

Kína – Frakkland 1-3 (20–25, 25–27, 25–22, 20–25)

Stigahæst í leiknum var Héléna Cazaute leikmaður Frakklands með 23 stig. Stigahæst í liði Kína var Yuanyuan Wang með 15 stig.

Brasilía – Dómíníska Lýðveldið 3-1 (18–25, 25–12, 25–20, 25–12)

Stigahæst í leiknum var Gabriela Braga Guimaraes leikmaður Brasilíu með 21 stig. Stigahæst í liði Dóminíska Lýðveldisins var Gaila Ceneida Gonzalez Lopez með 15 stig.

Leikmenn Brasilíu fagna stigi. (Mynd: Volleyball World)

Leikir í 16 liða úrslitum 1. September eru eftirfarandi:

  • Bandaríkin – Kanada, 10:00
  • Tyrkland – Slóvenía, 13:30